Fara í efni

Bjarmahlíð - styrkbeiðni

Málsnúmer 2404010

Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn Þingeyjarsveitar - 68. fundur - 13.11.2025

Fyrir sveitarstjórn liggur styrkbeiðni frá lögreglustjóranum á Norðurlandi eystra varðandi árlegt framlag til Bjarmahlíðar þolendamiðstöðvar. Óskað er eftir framlagi kr. 600.000.
Sveitarstjórn tekur jákvætt í erindið og vísar því til fjárhagsáætlunargerðar.

Samþykkt samhljóða.

Sveitarstjórn Þingeyjarsveitar - 80. fundur - 28.05.2026

Fyrir sveitarstjórn liggur uppfærð tillaga að kostnaðarskiptingu frá lögreglustjóranum á Norðurlandi eystra vegna reksturs Bjarmahlíðar þolendamiðstöðvar. Verið er að breyta greiðslutilhögun þeirra sveitarfélaga sem standa að miðstöðinni með þeim hætti að greitt er ákveðið grunnframlag sem er það sama fyrir öll sveitarfélög en síðan er hluti framlags grundvallaður á íbúafjölda í hverju sveitarfélagi. Breyting á framlagi Þingeyjarsveitar felur í sér örlitla hækkun á framlagi, úr 600 þúsund í 645.868. Breytingin rúmast innan fjárhagsáætlunar.
Sveitarstjórn samþykkir uppfærða tillögu að skiptingu framlaga sveitarfélaganna vegna reksturs Bjarmahlíðar. Sveitarstjórn beinir því til sviðsstjóra Fjölskyldusviðs að útfæra kynningu á starfseminni á miðlum og í stofnunum sveitarfélagsins sem og að kanna hvort viðkomandi aðilar geti nýtt sér aðstöðu á vegum sveitarfélagsins til viðtalstíma.

Samþykkt samhljóða.
Getum við bætt efni þessarar síðu?