Steinholt Umsókn um Byggingarheimild umfangsflokkur 2
Málsnúmer 2604003
Vakta málsnúmerSkipulagsnefnd - 48. fundur - 22.04.2026
Hilmir Freyr Halldórsson sækir um byggingarleyfi fyrir íbúðarhúsi í Steinholti í Mývatnssveit.
Skipulagsnefnd samþykkir að grenndarkynna áformin fyrir næstu nágrönnum á Grímsstöðum, Stiklum og Lindarhúsum og óska eftir umsögn Minjastofnun, Náttúruverndarstofnun, HNE og veitum Þingeyjarsveitar samkvæmt 2. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulagsnefnd - 50. fundur - 26.05.2026
Hilmir Freyr Halldórsson óskar eftir byggingarleyfi fyrir íbúðarhúsi að Steinholti Grímsstöðum. Framkvæmdin var grenndarkynnt frá 28.4. til og með 26.5. Umsögn barst frá Minjastofnun sem gerir ekki athugasemd. Veitur Þingeyjarsveitar gera ekki athugasemd.
Skipulagsnefnd samþykkir að veita byggingarleyfi og felur byggingarfulltrúa að annast málsmeðferð vegna þess eins og lög og reglugerðir mæla fyrir um þegar tilskilin gögn hafa borist.