Skipulagsnefnd
Dagskrá
1.Álftagerði 5- merkjalýsing
Málsnúmer 2604110Vakta málsnúmer
Tekin fyrir umsókn frá Ingvari K. Þorleifssyni f.h. Þórhalls Geirs Arngrímssonar um stofnun lóðar úr landi Álftagerðis 4 undir fyrirhugað íbúðarhús. Ekkert deiliskipulag er í gildi á svæðinu.
2.Stóru-Laugar umsókn um byggingarleyfi
Málsnúmer 2604026Vakta málsnúmer
Reyndarteikningar af súrheisturni sem er verið er að breyta í gistiaðstöðu.
Knútur vék af fundi undir þessum lið.
Breytt notkun samræmist skipulagi. Skipulagsnefnd samþykkir breytinguna og felur byggingarfulltrúa að annast málsmeðferð vegna þess eins og lög og reglugerðir mæla fyrir um þegar tilskilin gögn hafa borist. Skipulagsnefnd vekur athygli umsækjanda á að frekari uppbygging ferðaþjónustu gæti verði deiliskipulagsskyld.

3.Steinholt Umsókn um Byggingarheimild umfangsflokkur 2
Málsnúmer 2604003Vakta málsnúmer
Hilmir Freyr Halldórsson sækir um byggingarleyfi fyrir íbúðarhúsi í Steinholti í Mývatnssveit.
Skipulagsnefnd samþykkir að grenndarkynna áformin fyrir næstu nágrönnum á Grímsstöðum, Stiklum og Lindarhúsum og óska eftir umsögn Minjastofnun, Náttúruverndarstofnun, HNE og veitum Þingeyjarsveitar samkvæmt 2. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
4.Björg III Umsókn um Byggingarheimild umfangsflokkur 2
Málsnúmer 2604027Vakta málsnúmer
Þorgeir Hlöðversson óskar eftir byggingarleyfi fyrir einbýlishúsi að Björgum
Jóna Björg vék af fundi undir þessum lið.
Skipulagsnefnd samþykkir að grenndarkynna áformin fyrir öðrum landeigendum á Björgum og óska eftir umsögn Minjastofnunar samkvæmt 2. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Byggingafulltrúa er falið að gefa út byggingaleyfi ef engar athugasemdir berast við grenndarkynningu, að fenginni jákvæðri umsögn umsagnaraðila og þegar fullnægjandi gögn hafa borist.

5.Skógamelar - fyrirhuguð vinna við deiliskipulag
Málsnúmer 2603067Vakta málsnúmer
Lögð fram skipulagslýsing vegna deiliskipulags fyrir Skógamela í landi Skóga í Fnjóskadal.
Skipulagsnefnd óskar eftir að bætt verði inn í skipulagslýsingu þeim umhverfisþáttum sem skoðaðir verða i umhverfismati tillögunnar.
Skipuagnefnd felur skipulagsfulltrúa að kynna skipulagslýsingu vegna deiliskipulagsgerðar fyrir deiliskipulag í landi Skógarmela í samræmi við 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 þegar uppfærð gögn hafa borist.

6.Laugar - deiliskipulag
Málsnúmer 2406042Vakta málsnúmer
Sveitarstjórn vinnur að deiliskipulagi Lauga. Atli Steinn Sveinbjörnsson og Ómar Ívarsson - ráðgjafar hjá Landslagi koma inn á fundinn.
Lögð eru fram samantekt athugasemda við Skipulagslýsingu og fyrstu drög að skipulagsgreinargerð þar sem kaflar um forsendur og minjar eru orðnir nokkuð heillegir. Umræða um fyrirkomulag byggðar.
Lögð eru fram samantekt athugasemda við Skipulagslýsingu og fyrstu drög að skipulagsgreinargerð þar sem kaflar um forsendur og minjar eru orðnir nokkuð heillegir. Umræða um fyrirkomulag byggðar.
Skipulagsnefnd þakkar fyrir kynninguna. Skipulagsfulltrúa falið að vinna áfram að málinu. Gert er ráð fyrir kynningu á vinnslutillögu í haust.
7.Endurskoðun Aðalskipulags Svalbarðsstrandahrepps 2025-2037 - beiðni - umsögn
Málsnúmer 2402068Vakta málsnúmer
Svalbarðsstrandarhreppur hefur óskað eftir umsögn þinni við eftirfarandi mál í Skipulagsgátt:
Endurskoðun Aðalskipulags Svalbarðsstrandarhrepps 2008-2020, nr. 0123/2024: Auglýsing tillögu (Nýtt aðalskipulag)
Kynningartími er frá 16.3.2026 til 29.4.2026.
Endurskoðun Aðalskipulags Svalbarðsstrandarhrepps 2008-2020, nr. 0123/2024: Auglýsing tillögu (Nýtt aðalskipulag)
Kynningartími er frá 16.3.2026 til 29.4.2026.
Skipulagsnefnd felur skipulagsfulltrúa að skoða samræmi við sveitarfélagamörk í aðalskipulagi Þingeyjarsveitar. Skipulagsnefnd gerir að öðru leiti ekki athugasemdir við framlögð gögn.
8.Sveitarfélagið Hornafjörður, endurskoðun aðalskipulags - umsagnarbeiðni
Málsnúmer 2506030Vakta málsnúmer
Sveitarfélagið Hornafjörður hefur óskað eftir umsögn þinni við eftirfarandi mál í Skipulagsgátt:
Endurskoðun aðalskipulags Sveitarfélagsins Hornafjarðar, nr. 0011/2023: Auglýsing tillögu (Nýtt aðalskipulag)
Kynningartími er frá 14.4.2026 til 12.6.2026.
Endurskoðun aðalskipulags Sveitarfélagsins Hornafjarðar, nr. 0011/2023: Auglýsing tillögu (Nýtt aðalskipulag)
Kynningartími er frá 14.4.2026 til 12.6.2026.
Skipulagsnefnd felur skipulagsfulltrúa að skoða samræmi við sveitarfélagamörk í aðalskipulagi Þingeyjarsveitar. Skipulagsnefnd gerir að öðru leiti ekki athugasemdir við framlögð gögn.
9.Grýtubakkahreppur - endurskoðun aðalskipulags - umsagnarbeiðni
Málsnúmer 2604111Vakta málsnúmer
Grýtubakkahreppur hefur óskað eftir umsögn þinni við eftirfarandi mál í Skipulagsgátt:
Aðalskipulag Grýtubakkahrepps 2026 ? Endurskoðun, nr. 0409/2026: Lýsing (Nýtt aðalskipulag)
Kynningartími er frá 10.4.2026 til 8.5.2026.
Aðalskipulag Grýtubakkahrepps 2026 ? Endurskoðun, nr. 0409/2026: Lýsing (Nýtt aðalskipulag)
Kynningartími er frá 10.4.2026 til 8.5.2026.
Skipulagsnefnd felur skipulagsfulltrúa að skoða samræmi við sveitarfélagamörk í aðalskipulagi Þingeyjarsveitar. Skipulagsnefnd gerir að öðru leiti ekki athugasemdir við framlögð gögn
10.Þeistareykjavirkjun breyting - umsókn um skipulag
Málsnúmer 2604109Vakta málsnúmer
Landsvirkjun áformar að bæta nýtingu gufu á Þeistareykjum með virkjun toppþrýstings á Þeistareykjum. Uppsetning toppþrýstingshverfils, toppvélar, er áformuð skammt frá skiljustöð Þeistareykjastöðvar.
Upprunalegt deiliskipulag Þeistareykjavirkjunar tók ekki til toppvélar og var því gerð deiliskipulagsbreyting sem tók til byggingar toppvélarhúss sumarið 2025. Síðan þá hefur hönnun haldið áfram og ljóst er að gera þarf breytingu á ný til að framkvæmdir tengdum virkjuninni rúmist innan mannvirkjabelta skipulagsins. Í deiliskipulagi í kafla 3.6 Mannvirkjabelti segir: Við lokahönnun kunna að koma fram útfærslutillögur, sem ekki rúmast innan mannvirkjabelta og kalla á formlega breytingu á deiliskipulaginu. Málsmeðferð slíkra breytinga verður samkvæmt 43. grein Skipulagslaga nr. 123/2010.
Landsvirkjun óskar eftir heimild til að hefja breytingu deiliskipulags.

Haraldur yfirgaf fundinn kl 11:30
Skipulagsnefnd beinir því til Landsvirkjunar að leita annarra leiða til að koma gufulögnum frá borteig D en að þrengja að hverfisverndarsvæði hverasvæðisins. Skipulagsnefnd óskar eftir að fulltrúi Landsvirkjunar komi inn á næsta fund nefndarinnar til að fara yfir heildaráhrif og fyrirkomulag á virkjunarsvæðinu.

11.Þeistareykir - vegur að toppvélarhúsi - umsókn um framkvæmdaleyfi
Málsnúmer 2604108Vakta málsnúmer
Landsvirkjun sækir hér með um framkvæmdarleyfi til Þingeyjarsveitar í samræmi við 14. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 3. gr. reglugerðar nr. 772/2012 um framkvæmdaleyfi. Markmið framkvæmda sem nú er sótt um er að tengja fyrirhugað toppvélarhús við Þeistareykjaveg með vegagerð. Vegurinn mun einnig nýtast skiljustöð og fjölnýtingalóð og verður núverandi vegtenging að skiljustöð aflögð. Með þessu er tryggð sameiginleg aðkoma til framtíðar á svæðinu.
Skipulagsnefnd felur skipulagsfulltrúa að gefa út framkvæmdaleyfi í samræmi við reglugerð um framkvæmdaleyfi nr. 772/2012 og 13. - 16. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Fundi slitið - kl. 12:00.
Merkjalýsing er í samræmi við skipulagsáætlanir. Nefndin telur að stofnun lóðarinnar hafi ekki áhrif á búrekstrarskilyrði jarðarinnar, sbr. 6. gr. jarðalaga nr. 81/2004. Vakin er athygli á því að samþykkt á nýrri lóð felur ekki í sér samþykkt á mannvirkjagerð á lóðinni.