Skógamelar - fyrirhuguð vinna við deiliskipulag
Málsnúmer 2603067
Vakta málsnúmerSkipulagsnefnd - 48. fundur - 22.04.2026
Lögð fram skipulagslýsing vegna deiliskipulags fyrir Skógamela í landi Skóga í Fnjóskadal.
Skipulagsnefnd - 51. fundur - 18.06.2026
Lögð fram tillaga að deiliskipulagi fyrir Skógarmela í Fnjóskadal. Skipulagslýsing var auglýst frá 30. 4 - 21. 5. og bárust umsagnir frá Minjastofnun, HNE, Rarik og Vegagerðinni. Við vinnu við deiliskipulag var tekið tillit til þeirra umsagna sem bárust.
Skipulagsnefnd felur skipulagsfulltrúa að forkynna tillöguna. Að lokinni forkynningu verði málinu vísað til sveitarstjórnar og lagt til að tillagan verði auglýst skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 þegar brugðist hefur verið við umsögnum.
Skipulagsnefnd - 55. fundur - 14.10.2026
Lögð fram tillaga að deiliskipulagi fyrir Skógarmela í Fnjóskadal. Skipulagið var kynnt á vinnslustigi frá 18. september til 2. október og bárust umsagnir frá Minjastofnun, HNE, Rarik og Vegagerðinni.
Skipulagsnefnd telur ekki þörf á viðbrögðum við fram komnum athugasemdum og felur skipulagsfulltrúa að svara Vegagerðinni vegna vegtenginga. Skipulagsnefnd vekur athygli á að óheimilt er að hefja framkvæmdir innan svæðisins fyrr en að skipulagsferli og leyfisveitingum er lokið.
Málinu vísað til sveitarstjórnar og lagt til að tillagan verði auglýst skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Málinu vísað til sveitarstjórnar og lagt til að tillagan verði auglýst skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Sveitarstjórn Þingeyjarsveitar - 88. fundur - 22.10.2026
Á 55. fundi skipulagsnefndar var eftirfarandi bókað og samþykkt varðandi tillögu að deiliskipulagi fyrir Skógarmela í Fnjóskadal:
"Skipulagsnefnd telur ekki þörf á viðbrögðum við fram komnum athugasemdum og felur skipulagsfulltrúa að svara Vegagerðinni vegna vegtenginga. Skipulagsnefnd vekur athygli á að óheimilt er að hefja framkvæmdir innan svæðisins fyrr en að skipulagsferli og leyfisveitingum er lokið.
Málinu vísað til sveitarstjórnar og lagt til að tillagan verði auglýst skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010."

Til máls tóku: Anna og Dóra Rún.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða bókun skipulagsnefndar.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða bókun skipulagsnefndar.
Skipuagnefnd felur skipulagsfulltrúa að kynna skipulagslýsingu vegna deiliskipulagsgerðar fyrir deiliskipulag í landi Skógarmela í samræmi við 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 þegar uppfærð gögn hafa borist.