Skipulagsnefnd
Dagskrá
Líney forfallaðist með skömmum fyrirvara og ekki tókst að boða varamann í tíma.
1.Skipulagsnefnd - kosning varaformanns
Málsnúmer 2606028Vakta málsnúmer
Fyrir skipulagsnefnd liggur að kjósa varaformann nefndarinnar.
Formaður lagði fram tillögu um að Líney Rúnarsdóttir yrði varaformaður nefndarinnar. Samþykkt samhljóða.
2.Skipulagsnefnd - kynning á hlutverki
Málsnúmer 2606033Vakta málsnúmer
Lagt fram til kynningar minnisblað skipulagsfulltrúa.
3.Hraunvegur 8 - umsókn um byggingarleyfi fyrir geymsluskúr
Málsnúmer 2509053Vakta málsnúmer
Umsókn um byggingu geymsluskúrs við Hraunveg 8 tekin fyrir að nýju eftir grenndarkynningu ásamt þeim athugasemdum sem bárust.
Skipulagsnefnd telur ekki tilefni til breytinga á kynntum byggingaráformum eftir yfirferð athugasemda sem bárust við grenndarkynningu. Skipulagsnefnd samþykkir að veita byggingarleyfi og felur byggingarfulltrúa að annast málsmeðferð vegna þess eins og lög og reglugerðir mæla fyrir um þegar tilskilin gögn hafa borist. Nefndin tekur undir markmið húsbyggjanda um að framkvæmdin falli sem best að núverandi byggingu.
4.Skógamelar - Deiliskipulag
Málsnúmer 2603067Vakta málsnúmer
Lögð fram tillaga að deiliskipulagi fyrir Skógarmela í Fnjóskadal. Skipulagslýsing var auglýst frá 30. 4 - 21. 5. og bárust umsagnir frá Minjastofnun, HNE, Rarik og Vegagerðinni. Við vinnu við deiliskipulag var tekið tillit til þeirra umsagna sem bárust.
Skipulagsnefnd felur skipulagsfulltrúa að forkynna tillöguna. Að lokinni forkynningu verði málinu vísað til sveitarstjórnar og lagt til að tillagan verði auglýst skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 þegar brugðist hefur verið við umsögnum.
5.Rönd í Mývatnssveit - plæging vegna háspennustrengs - umsókn um framkvæmdaleyfi
Málsnúmer 2606015Vakta málsnúmer
Rarik sækir um framkvæmdaleyfi vegna plægingar á 12 kV háspennustreng frá gámasvæði að Rönd. Strengurinn verður lagður í Sandvatn. Heildarleið c 3,6 km. þar af 850 m í Sandvatn. Áætlaður verktími er ágúst/september 2026. Gert er ráð fyrir að fjarlægja loftlínur eftir framkvæmdina, það verður gert í samstarfi við Náttúruverndarstofnun. Leyfi Náttúruverndarstofnunar liggur fyrir.
Skipulagsnefnd felur skipulagsfulltrúa að gefa út framkvæmdaleyfi í samræmi við reglugerð um framkvæmdaleyfi nr. 772/2012 og 13. - 16. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, með þeim skilyrðum sem sett eru fram í leyfi Náttúruverndarstofnunar, og með fyrirvara um jákvætt álit Minjastofnunar, og með þeim fyrirvara að þar sem um ráðstöfun sameignarlands er að ræða kalli skipulagsfulltrúi eftir nánari gögnum um samþykki landeigenda með vísan í II kafla jarðalaga nr. 81/2004, (7.gr.c) um jarðir í sameign. Skipulagsnefnd bendir að sækja þarf um leyfi hjá Fiskistofu.
6.Gullsandur - svartvatnstankur - heimtaug - umsókn um framkvæmdaleyfi
Málsnúmer 2606018Vakta málsnúmer
Rarik áætlar að plægja 12 kV háspennustreng að svartvatnstanki um Gullsand. Heildarstrengleiðin er u.þ.b. 1 km. Leiðin liggur að mestu um þegar raskað svæði meðfram vegi.
Skipulagsnefnd telur að framkvæmdin sé ekki líkleg til að hafa áhrif á ásýnd og umhverfi og því ekki framkvæmdaleyfisskyld.
Fundi slitið - kl. 10:28.