Rönd í Mývatnssveit - plæging vegna háspennustrengs - umsókn um framkvæmdaleyfi
Málsnúmer 2606015
Vakta málsnúmerSkipulagsnefnd - 51. fundur - 18.06.2026
Rarik sækir um framkvæmdaleyfi vegna plægingar á 12 kV háspennustreng frá gámasvæði að Rönd. Strengurinn verður lagður í Sandvatn. Heildarleið c 3,6 km. þar af 850 m í Sandvatn. Áætlaður verktími er ágúst/september 2026. Gert er ráð fyrir að fjarlægja loftlínur eftir framkvæmdina, það verður gert í samstarfi við Náttúruverndarstofnun. Leyfi Náttúruverndarstofnunar liggur fyrir.
Skipulagsnefnd felur skipulagsfulltrúa að gefa út framkvæmdaleyfi í samræmi við reglugerð um framkvæmdaleyfi nr. 772/2012 og 13. - 16. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, með þeim skilyrðum sem sett eru fram í leyfi Náttúruverndarstofnunar, og með fyrirvara um jákvætt álit Minjastofnunar, og með þeim fyrirvara að þar sem um ráðstöfun sameignarlands er að ræða kalli skipulagsfulltrúi eftir nánari gögnum um samþykki landeigenda með vísan í II kafla jarðalaga nr. 81/2004, (7.gr.c) um jarðir í sameign. Skipulagsnefnd bendir að sækja þarf um leyfi hjá Fiskistofu.