Þeistareykjavirkjun breyting - umsókn um skipulag
Málsnúmer 2604109
Vakta málsnúmerSkipulagsnefnd - 48. fundur - 22.04.2026
Landsvirkjun áformar að bæta nýtingu gufu á Þeistareykjum með virkjun toppþrýstings á Þeistareykjum. Uppsetning toppþrýstingshverfils, toppvélar, er áformuð skammt frá skiljustöð Þeistareykjastöðvar.
Upprunalegt deiliskipulag Þeistareykjavirkjunar tók ekki til toppvélar og var því gerð deiliskipulagsbreyting sem tók til byggingar toppvélarhúss sumarið 2025. Síðan þá hefur hönnun haldið áfram og ljóst er að gera þarf breytingu á ný til að framkvæmdir tengdum virkjuninni rúmist innan mannvirkjabelta skipulagsins. Í deiliskipulagi í kafla 3.6 Mannvirkjabelti segir: Við lokahönnun kunna að koma fram útfærslutillögur, sem ekki rúmast innan mannvirkjabelta og kalla á formlega breytingu á deiliskipulaginu. Málsmeðferð slíkra breytinga verður samkvæmt 43. grein Skipulagslaga nr. 123/2010.
Landsvirkjun óskar eftir heimild til að hefja breytingu deiliskipulags.

Skipulagsnefnd beinir því til Landsvirkjunar að leita annarra leiða til að koma gufulögnum frá borteig D en að þrengja að hverfisverndarsvæði hverasvæðisins. Skipulagsnefnd óskar eftir að fulltrúi Landsvirkjunar komi inn á næsta fund nefndarinnar til að fara yfir heildaráhrif og fyrirkomulag á virkjunarsvæðinu.