Fara í efni

Þeistareykir - vegur að toppvélarhúsi - umsókn um framkvæmdaleyfi

Málsnúmer 2604108

Vakta málsnúmer

Skipulagsnefnd - 48. fundur - 22.04.2026

Landsvirkjun sækir hér með um framkvæmdarleyfi til Þingeyjarsveitar í samræmi við 14. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 3. gr. reglugerðar nr. 772/2012 um framkvæmdaleyfi. Markmið framkvæmda sem nú er sótt um er að tengja fyrirhugað toppvélarhús við Þeistareykjaveg með vegagerð. Vegurinn mun einnig nýtast skiljustöð og fjölnýtingalóð og verður núverandi vegtenging að skiljustöð aflögð. Með þessu er tryggð sameiginleg aðkoma til framtíðar á svæðinu.
Skipulagsnefnd felur skipulagsfulltrúa að gefa út framkvæmdaleyfi í samræmi við reglugerð um framkvæmdaleyfi nr. 772/2012 og 13. - 16. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Getum við bætt efni þessarar síðu?