Björg III - merkjalýsing undir íbúðarhús
Málsnúmer 2605038
Vakta málsnúmerSkipulagsnefnd - 50. fundur - 26.05.2026
Hákon Jensson leggur inn merkjalýsingu fyrir lóð undir nýtt íbúðarhús að Björgum III. Um er að ræða afmörkum á lóðinni og skipt í tvo hluta.
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við landskiptagerð, enda samræmist hún skipulagsáætlunum og felur byggingarfulltrúa að annast málsmeðferð vegna hennar eins og lög og reglugerðir mæla fyrir um þegar tilskilin gögn hafa borist.
Nefndin telur að stofnun lóðarinnar hafi ekki áhrif á búrekstrarskilyrði jarðarinnar, sbr. 6. gr. jarðalaga nr. 81/2004. Nefndin bendir á að samþykkt lóðamarka felur ekki á neinn hátt í sér samþykki til framkvæmda á lóðinni.