Fara í efni

Laugavellir - gróðurhús

Málsnúmer 2604133

Vakta málsnúmer

Skipulagsnefnd - 49. fundur - 21.05.2026

Helga Skúladóttir sækir um heimild til að setja upp gróðurhús við hlöðuna á Laugavöllum. Gróðurhúsið er 8x20m og verður komið fyrir ofan á malarpúða. Umrætt svæði er skilgreint sem landbúnaðarsvæði í aðalskipulagi. Ekkert deiliskipulag er í gildi á svæðinu.
Skipulagsnefnd felur skipulagsfulltrúa að kalla eftir gögnum til grenndarkynningar og grenndarkynna fyrir Laugabergi, Laugabrekku, Stórulaugum, Laugagerði, og Lækjarás í samræmi við 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Byggingafulltrúa er falið að gefa út byggingaleyfi ef engar athugasemdir berast við grenndarkynningu, að fenginni jákvæðri umsögn umsagnaraðila og þegar fullnægjandi gögn hafa borist.
Getum við bætt efni þessarar síðu?