Umsögn - Drög að frumvarpi til laga um breytingar á skipulagslögum nr. 1232010
Málsnúmer 2610043
Vakta málsnúmerSkipulagsnefnd - 55. fundur - 14.10.2026
Félags- og húsnæðismálaráðuneytið kynnir til samráðs drög að frumvarpi til laga um breytingu á skipulagslögum nr. 123/2010. Fyrirhugað er að aðlaga löggjöfina að breyttum tímum, bæta skilvirkni stjórnsýslu og stytta ferla þar sem það á við. M.a. er lagt til að einfalda, skýra og samræma ákvæði skipulagslaga um birtingu upplýsinga og auglýsinga í skipulagsmálum, m.a. þannig að Skipulagsgátt verði vettvangur fyrir formlega birtingu gagna og móttöku athugasemda og umsagna. Einnig eru lagðar til breytingar vegna svæðisskipulags og sett inn heimild til að fella niður svæðisskipulag að uppfylltum tilteknum skilyrðum. Þá eru lagðar til breytingar til að einfalda tiltekna þætti málsmeðferðar við gerð og breytingar skipulagsáætlana og til að tryggja skilvirkari og fyrirsjáanlegri meðferð mála án þess að dregið sé úr samráði, faglegum undirbúningi eða réttaröryggi. Sjá mál í samráðsgátt stjórnvalda nr. S-190/2026
Lagt fram til kynningar.