Fara í efni

Garður stofna lóð fyrir spennistöð - merkjalýsing

Málsnúmer 2610030

Vakta málsnúmer

Skipulagsnefnd - 55. fundur - 14.10.2026

Efla gerir merkjalýsingu fyrir Rarik um stofnun lóðar undir spennistöð í Garði Mývatnssveit. Ekkert deiliskipulag er í gildi á svæðinu.
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við stofnun lóðarinnar í Garði og felur byggingarfulltrúa að annast málsmeðferð vegna hennar eins og lög og reglugerðir mæla fyrir um þegar tilskilin gögn hafa borist. Skipulagsnefnd óskar eftir, í framtíðinni, að merkjalýsingum fylgi afstöðumynd þannig að hægt sé að átta sig á aðstæðum og staðsetningu á auðveldan hátt. Nefndin bendir á að ekki er ljóst hvort lóðin liggi innan veghelgunarsvæðis og þá hvort umsagnar Vegagerðarinnar sé þörf fyrir byggingu á lóðinni.
Getum við bætt efni þessarar síðu?