Brettingsstaðir og Ljótsstaðir - mótmæli opinnar reiðleiðar í aðalskipulagi
Málsnúmer 2609039
Vakta málsnúmerSkipulagsnefnd - 55. fundur - 14.10.2026
Fyrir skipulagsnefnd liggur erindi frá landeigendum Brettingsstaða og Ljótsstaða þar sem mótmælt er opinni reiðleið í aðalskipulagi í gegnum land Brettingsstaða og Ljótsstaða
Í aðalskipulagi Þingeyjarsveitar eru skilgreindar reiðleiðir um sveitarfélagið, það er hins vegar ekki tæmandi útlistun á opnum leiðum eða forsenda nýtingar. Í aðalskipulagi eru sýndar stofnreiðleiðir þar sem gert er ráð fyrir framkvæmdum og endurbótum. Reiðleiðir kunna að vera opnar fyrir öðrum fararmátum s.s. gangandi og umferð reiðhjóla. Skipulagsnefnd lítur svo á að skilgreining reiðleiðar í aðalskipulagi geri fyrst og fremst ráð fyrir að þar sé unnt að leggja reiðleið fyrir ríðandi menn og gefur engum rétt til að reka hrossastóð eftir þeim leiðum án samráðs við landeigendur og án þess að bera ábyrgð á skemmdum.
Skipulagsnefnd lítur svo á að umrædd leið falli undir skilgreiningu á héraðsleið í flokkun reiðleiða í Reiðvegahandbók Vegagerðarinnar og Landsambands hestamanna.
Skipulagsnefnd vekur einnig athygli á því að skv. náttúruverndarlögum nr. 60/2013 er óheimilt að reka hross yfir gróið land þannig að náttúruspjöll hljótist af eða hætta skapist á náttúruspjöllum. Skv. reglugerð um takmarkanir á umferð í náttúru Íslands nr. 528/2005 skal, þegar farið er eftir gömlum þjóðleiðum, þar sem þær eru markaðar í landið skal eigi teyma fleiri hross en svo að þau rúmist innan slóðar, ellegar reka hross þannig að þau lesti sig.
Skipulagsnefnd telur að frjáls för einstaklinga um gamlar þjóðleiðir sé partur af menningararfi og sé mikilvægt að sé haldið við. Nefndin áréttar að forsenda fyrir því að þjóðleiðum sé haldið opnum áfram byggist á góðri og hóflegri umgengni og sátt um nýtingu. Nefndin beinir því til hestamannafélaga á svæðinu að taka upp samtal um reiðleiðir og umgengni þeirra og samráð og af virðingu við landeigendur.
Skipulagsnefnd tekur ekki undir að ekki hafi verið staðið nægilega vel að kynningu aðalskipulags. Það var í öllu farið eftir þeim lögum og reglum sem um það gilda og reyndar gott betur. Í aðdraganda þess voru auglýst þrjú kynningarferli, þau voru auglýst á öllum þeim miðlum sem okkur datt í hug til að ná til sem flestra íbúa og landeigenda. Auk þess voru haldnir og auglýstir íbúafundir sem voru vel sóttir.
Það er mikilvægt að fylgjast með því sem gerist í skipulagsmálum á svæðinu og það er á ábyrgð landeigenda og íbúa að gera það til að gæta sinna hagsmuna. Skipulagsnefnd bendir á vefsíðuna Skipulagsgáttin þar sem hægt er að gerast áskrifandi af málum eftir því sem hentar, bæði eftir afmörkuðum svæðum, póstnúmerum, sveitarfélögum eða öðru sem skiptir máli.