Fara í efni

Grenjaðarstaður - stækkun kirkjugarðs

Málsnúmer 2506035

Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn Þingeyjarsveitar - 61. fundur - 26.06.2025

Fyrir sveitarstjórn liggur erindi frá sóknarnefnd Grenjaðastaðarkirkju er varðar stækkun kirkjugarðsins.
Til máls tók: Árni Pétur.

Sveitarstjórn þakkar sóknarnefnd erindið og felur sveitarstjóra að ræða við landeigendur og Þjóðkirkjuna, að öðru leyti vísar sveitarstjórn erindinu til fjárhagsáætlunar 2026.

Samþykkt samhljóða.

Skipulagsnefnd - 46. fundur - 18.02.2026

Stækkun kirkjugarðs á Grenjaðarstað. Tillaga lögð fram til kynningar.

Skipulagsnefnd - 55. fundur - 14.10.2026

Fyrir skipulagsnefnd liggur erindi frá formanni sóknarnefndar Grenjaðarstaðarkirkju er varðar stækkun kirkjugarðsins.
Skipulagsnefnd samþykkir stækkun á kirkjugarðinum, með fyrirvara um samþykki Minjastofnunar, enda er stækkunin í samræmi við nýsamþykkt aðalskipulag Þingeyjarsveitar 2024-2044. Ekkert deiliskipulag er í gildi á svæðinu. Skipulagsnefnd óskar eftir að teikning af grafarplani verði lögð fyrir nefndina til staðfestingar þegar það liggur fyrir. Skipulagsnefnd hvetur kirkjugarðaráð til að ganga frá samningum um eignarhald og merkjalýsingu svo sveitarfélagið geti undirbúið svæðið til greftrunar.
Getum við bætt efni þessarar síðu?