Fara í efni

Skipulagsnefnd

46. fundur 18. febrúar 2026 kl. 09:00 - 13:40 í Þingey
Nefndarmenn
  • Knútur Emil Jónasson
  • Nanna Þórhallsdóttir
  • Haraldur Bóasson
  • Sigurður Guðni Böðvarsson
  • Sigríður Hlynur Helguson Snæbjörnsson
Starfsmenn
  • Rögnvaldur Harðarson
  • Brynja Dögg Ingólfsdóttir
Fundargerð ritaði: Brynja Dögg Ingólfsdóttir
Dagskrá
Árni Geirsson hjá Alta kom inn á fundinn undir þessum lið.

1.Aðalskipulag 2024-2044 - endurskoðun

Málsnúmer 2308006Vakta málsnúmer

Tillaga að endurskoðuðu aðalskipulagi Þingeyjarsveitar var auglýst frá 22.september til 17. nóvember 2025. 76 umsagnir og athugasemdir bárust og hefur skipulagsnefnd farið vandlega yfir þær og lagt til svör og viðbrögð við þeim.

Lögð fram drög að svörum og viðbrögðum skipulagsnefndar við umsögnum og athugasemdum.



Skipulagsnefnd samþykkir tillögur að svörum við umsögnum við auglýsta tillögu að aðalskipulagi, með þeim breytingum sem gerðar voru á fundinum. Starfsmanni falið að uppfæra gögn í samræmi við þær breytingar sem lagðar voru til á fundinum og leggja fyrir sveitarstjórn til afgreiðslu í samræmi við 2. mgr. 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulagsnefnd samþykkir einnig tillögur að svörum við athugasemdum við skrá um vegi í náttúru Íslands. Skipulagsnefnd leggur til að sveitarstjórn samþykki þá tillögu að vegaskrá sem fram kemur á skýringaruppdrætti og kynnt var samhliða aðalskipulagstillögunni í samræmi við ákvæði 2. mgr. 32. gr. laga um náttúruvernd nr. 60/2013. Vegaskráin er samþykkt með öllum þeim margþættu fyrirvörum sem settir voru fram í kynningargögnum og án upplýsinga um vegi innan Vatnajökulsþjóðgarðs, þar sem Náttúruverndarstofnun hefur ekki lokið gerð stjórnunar- og verndaráætlunar á hluta svæðisins. Jafnframt er ljóst að vegaskráin getur af sömu ástæðum ekki hlotið samþykki Náttúruverndarstofnunar eins og áskilið er í lagagreininni, sbr. einnig umsögn stofnunarinnar um aðalskipulagstillöguna.
SKipulagsnefnd þakkar Árna Geirssyni hjá Alta fyrir góða samvinnu við skipulagsgerðina.
Sigríður Hlynur vekur athygli á mögulegu vanhæfi sem var borið upp og hafnað.

2.Skjálfandafljót - umsagnarbeiðni vegna máls um Norðausturveg um Skjálfandafljót í Kinn - kynning á umhverfismatsskýrslu

Málsnúmer 2602003Vakta málsnúmer

Fyrir skipulagsnefnd liggur umsagnarbeiðni frá Skipulagsstofnun vegna máls nr. 1223/2024 í Skipulagsgátt með yfirskriftina Norðaustuvegur um Skjálfandafljót í Kinn, kynning umhverfismatsskýrslu, mat á umhverfisáhrifum. Kynningartími er frá 20.1.2026 til 3.3.2026.
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemdir við umhverfismatsskýrslu.
Í tillögu að nýju aðalskipulagi Þingeyjarsveitar er sýnd veglína A sem samkvæmt niðurstöðu umhverfismatsskýrslu mun hafa jákvæðari áhrif á samgöngur og umferðaröryggi þrátt fyrir neikvæðari áhrif á umhverfið en veglína B. Skipulagsnefnd er sammála leiðarvali Vegagerðarinnar og fagnar þessum áfanga í uppbyggingu samgangna í sveitarfélaginu.
Framkvæmdin er framkvæmdaleyfisskyld.

3.Stafn 2 - umsókn um byggingarleyfi fyrir litlu íbúðarhúsi

Málsnúmer 2601045Vakta málsnúmer

Sótt er um byggingarleyfi fyrir íbúðarhús að Stafni 2. Um er að ræða lítið einbýlishús á einni hæð á landbúnaðarlandi skv. aðalskipulagi.
Skipulagsnefnd samþykkir að veita megi byggingarleyfi án deiliskipulagsgerðar enda er framkvæmdin í samræmi við landnotkun, byggðamynstur og þéttleika byggðar. Fallið er frá grenndarkynningu þar sem húsbyggingin varðar ekki hagsmuni annarra en umsækjanda.
Umsækjanda er bent á að fá þarf heimild Vegagerðarinnar fyrir tengingu við þjóðveg.

4.Ljósaland - umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2405011Vakta málsnúmer

Óskað er eftir byggingarleyfi fyrir íbúðarhúsi að Ljósalandi í Bárðardal. Um er að ræða lítið einbýlishús á einni hæð með kjallara á landbúnaðarlandi skv. aðalskipulagi.
Skipulagsnefnd samþykkir að veita megi byggingarleyfi án deiliskipulagsgerðar enda er framkvæmdin í samræmi við landnotkun, byggðamynstur og þéttleika byggðar. Fallið er frá grenndarkynningu þar sem húsbyggingin varðar ekki hagsmuni annarra en umsækjanda.

5.Grenjaðarstaður - stækkun kirkjugarðs

Málsnúmer 2506035Vakta málsnúmer

Stækkun kirkjugarðs á Grenjaðarstað. Tillaga lögð fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 13:40.

Getum við bætt efni þessarar síðu?