Fara í efni

Skjálfandafljót - umsagnarbeiðni vegna máls um Norðausturveg um Skjálfandafljót í Kinn - kynning á umhverfismatsskýrslu

Málsnúmer 2602003

Vakta málsnúmer

Skipulagsnefnd - 46. fundur - 18.02.2026

Sigríður Hlynur vekur athygli á mögulegu vanhæfi sem var borið upp og hafnað.
Fyrir skipulagsnefnd liggur umsagnarbeiðni frá Skipulagsstofnun vegna máls nr. 1223/2024 í Skipulagsgátt með yfirskriftina Norðaustuvegur um Skjálfandafljót í Kinn, kynning umhverfismatsskýrslu, mat á umhverfisáhrifum. Kynningartími er frá 20.1.2026 til 3.3.2026.
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemdir við umhverfismatsskýrslu.
Í tillögu að nýju aðalskipulagi Þingeyjarsveitar er sýnd veglína A sem samkvæmt niðurstöðu umhverfismatsskýrslu mun hafa jákvæðari áhrif á samgöngur og umferðaröryggi þrátt fyrir neikvæðari áhrif á umhverfið en veglína B. Skipulagsnefnd er sammála leiðarvali Vegagerðarinnar og fagnar þessum áfanga í uppbyggingu samgangna í sveitarfélaginu.
Framkvæmdin er framkvæmdaleyfisskyld.
Getum við bætt efni þessarar síðu?