Ljósaland - umsókn um byggingarleyfi
Málsnúmer 2405011
Vakta málsnúmerSkipulagsnefnd - 46. fundur - 18.02.2026
Óskað er eftir byggingarleyfi fyrir íbúðarhúsi að Ljósalandi í Bárðardal. Um er að ræða lítið einbýlishús á einni hæð með kjallara á landbúnaðarlandi skv. aðalskipulagi.
Skipulagsnefnd samþykkir að veita megi byggingarleyfi án deiliskipulagsgerðar enda er framkvæmdin í samræmi við landnotkun, byggðamynstur og þéttleika byggðar. Fallið er frá grenndarkynningu þar sem húsbyggingin varðar ekki hagsmuni annarra en umsækjanda.