Vegagerðin óskar eftir heimild til að færa stoppistöð og nýta aðstöðu og plan við Ýdali.
Skipulagsnefnd samþykkir tillögu að staðsetningu stoppistöðvar við félagsheimilið Ýdali og leggur til að staur með merkingum verði settur upp í samráði við húsvörð austast á bílaplaninu fremur en við aðalinngang. Skipulagsnefnd felur sviðsstjóra umhverfis- og framkvæmdasviðs að ræða við Vegagerðina um aðkomu þeirra að lýsingu á svæðinu. Skipulagsnefnd hvetur Vegagerðina til að skoða aðrar stoppistöðvar í sveitarfélaginu með það að markmiði að auka öryggi og bæta þjónustu.
Málinu vísað til sveitarstjórnar.
Málinu vísað til sveitarstjórnar.