Fara í efni

FIFA Arena verkefni FIFA og KSÍ

Málsnúmer 2608029

Vakta málsnúmer

Íþrótta-, tómstunda- og menningarnefnd Þingeyjarsveit - 32. fundur - 18.08.2026

Alþjóðaknattspyrnusambandið er með verkefni í gangi til uppbyggingar mini-knattspyrnuvalla. Hægt er að sækja um styrk til verkefnisins til 18. september n.k.
Nefndin er mjög áhugasöm um verkefnið og leggur til að sótt verði um Fifa Arena í Þingeyjarsveit. Jafnframt leggur ÍTM til að kostnaðargreining fari fram varðandi undirlag, aðgengi og umhverfisfrágang skv. skilmálum, hvar sé mesta þörfin fyrir slíka velli og hvar sé hagkvæmast að koma þeim fyrir.

Sveitarstjórn Þingeyjarsveitar - 85. fundur - 27.08.2026

Á 32. fundi íþrótta-, tómstunda- og menningarnefndar var eftirfarandi bókað varðandi FIFA Arena verkefni FIFA og KSÍ en Alþjóðaknattspyrnusambandið er með verkefni í gangi til uppbyggingar mini-knattspyrnuvalla. Umsóknarfrestur er til 18. september nk.

"Nefndin er mjög áhugasöm um verkefnið og leggur til að sótt verði um Fifa Arena í Þingeyjarsveit. Jafnframt leggur ÍTM til að kostnaðargreining fari fram varðandi undirlag, aðgengi og umhverfisfrágang skv. skilmálum, hvar sé mesta þörfin fyrir slíka velli og hvar sé hagkvæmast að koma þeim fyrir."
Til máls tóku: Snæþór og Nanna.

Sveitarstjórn felur sveitarstjóra að ganga frá umsóknum og láta vinna nauðsynleg gögn þeim tengdum. Sveitarstjórn bendir líka á eldra mál þar sem foreldrafélag Stórutjarnaskóla óskaði eftir samvinnu við sveitarfélag varðandi svipaða aðstöðu.

Samþykkt samhljóða.

Sveitarstjórn Þingeyjarsveitar - 86. fundur - 10.09.2026

Fyrir sveitarstjórn liggur minnisblað sveitarstjóra með grófu kostnaðarmati fyrir undirlag, hvað felst í mótframlagi umsækjanda og vangaveltur um staðarval FIFA Arena knattspyrnuvalla í sveitarfélaginu.

Umsóknarfrestur er til 18. september.
Til máls tók: Dóra Rún.

Sveitarstjórn felur sveitarstjóra að senda inn umsóknir fyrir grunnskóla sveitarfélagsins.

Samþykkt samhljóða.

Getum við bætt efni þessarar síðu?