Atvinnu- og nýsköpunarnefnd Þingeyjarsveit
Dagskrá
1.Þeistareykir - rjúpnaveiði - reglur og sala veiðileyfa
Málsnúmer 2209049Vakta málsnúmer
Fyrirkomulag rjúpnaveiði á Þeistareykjum hefur verið með sama hætti frá árinu 2021. Skipuleg rjúpnaveiði er heimil með takmörkuðum fjölda leyfa gegn gjaldi sem miðast við miðgildi gjalda annarra söluaðila á hlunnindi.is. Salan fer fram á vefsíðunni hlunnindi.is. Rjúpnaveiði er óheimil á Þeistareykjum án leyfis.
2.Áfangastaðaáætlun Norðurlands Uppfærsla verkefna
Málsnúmer 2509050Vakta málsnúmer
Í íbúasamráði í mars sl. komu eftirfarandi tillögur fram:
Bæta aðgengi og veg að Aldey og Aldeyjarfossi austan megin við Skjálfandafljót.
Bæta tengingu úr Mývatnssveit um Laxárdal til Aðaldals.
Virkja gamla vegi til göngu-, hjóla- og hlaupaferða, s.s. línuvegi og gamla vegslóða.
Byggja upp gönguleið þar sem nú er til staðar moldarslóði í Mývatnssveit sunnan Hverfjalls.
Einnig hefur borist beiðni frá Íslandshótelum um að verkefni sem tengist fegrun svæðisins umhverfis Flatskalla í landi Grímsstaða við Mývatn verði sett inn á forgangsverkefni áfangastaðaáætlunar í Þingeyjarsveit. Fyrir liggur samþykki landeigenda.

Lagt fram til kynningar.
Atvinnu- og nýsköpunarnefnd telur að fegrun svæðisins umhverfis Flatskalla falli undir verkefnið "Gönguleiðir við þéttbýlisstaði í Þingeyjarsveit" sem er á lista forgangsverkefna Þingeyjarsveitar.

3.Uppbygging, atvinna og nýsköpun - staða mála
Málsnúmer 2608053Vakta málsnúmer
Undir þessum lið voru rædd eftirfarandi atvinnu- og nýsköpunarmál:
Hönnunarþing um orku, á Stéttinni á Húsavík í september sl.
Samherji fiskþurrkun á Laugum, staða mála.
Uppbygging á Kárhóli og möguleikar á gestastofu.
Málefni rædd við þingmenn í kjördæmaviku og snúa að atvinnumálum.
Skýrsla Byggðastofnunar sem kom út í september, Hvar eru ríkisstörfin?
Fyrirhuguð hækkun VSK á baðlón.

Atvinnu- og nýsköpunarnefnd Þingeyjarsveitar telur áform ríkisstjórnarinnar um hækkun virðisaukaskatts á baðlón úr 11% í 24% frá byrjun árs 2027 varhugaverð. Jarðböðin í Mývatnssveit, sem eru mikilvægur hluti ferðaþjónustunnar á svæðinu, hafa staðið í milljarða fjárfestingum og munu áform ríkisstjórnarinnar breyta þeirra rekstrarforsendum. Mikilvægi Jarðbaðanna nær langt út fyrir eigin rekstur, styður við störf, eflir aðra þjónustu og skapar verðmæti í sveitarfélaginu. Nefndin hvetur stjórnvöld til að endurskoða áformin og falla frá þeim.
Atvinnu- og nýsköpunarnefnd ítrekar mikilvægi allra starfa í sveitarfélaginu og væntir þess að starfsemi Samherja á Laugum hefjist sem allra fyrst aftur.

4.Markaðsstofa Norðurlands - kynning á starfseminni
Málsnúmer 2609041Vakta málsnúmer
Á fundinn komu kl. 11 frá Markaðsstofu Norðurlands, Halldór Óli Kjartansson, starfandi framkvæmdastjóri og Elín Aradóttir verkefnastjóri áfangastaðaþróunar og kynntu starfsemina.
Atvinnu- og nýsköpunarnefnd þakkar Halldóri og Elínu fyrir góða kynningu á starfsemi Markaðsstofunnar.
5.Þingeyjarsveit - stöðugreining og aðgerðaráætlun ferðaþjónustu
Málsnúmer 2509048Vakta málsnúmer
Aðgerðaáætlun, Þingeyjarsveitar, Markaðsstofu Norðurlands og SSNE
Elín Aradóttir, verkefnastjóri áfangastaðaþróunar hjá Markaðsstofu Norðurlands, fór yfir stöðuna á aðgerðaráætluninni.

Nefndin þakkar Elínu fyrir góða kynningu á stöðu verkefnisins.
6.Atvinnustefna Þingeyjarsveitar
Málsnúmer 2503064Vakta málsnúmer
Nefndin hélt vinnufund um atvinnustefnu Þingeyjarsveitar. Elva Gunnlaugsdóttir verkefnastjóri hjá SSNE stýrði vinnu við stefnuna og aðgerðaáætlun.
Nefndin þakkar Elvu fyrir góða vinnu. Áfram verður unnið í Atvinnustefnunni á næsta fundi.
7.Innviðagreining Þingeyjarsveitar
Málsnúmer 2610002Vakta málsnúmer
Fyrir nefndinni liggur grunnur að Innviðagreiningu Þingeyjarsveitar, unnið af verkefnastjóra umhverfis og atvinnuþróunar hjá Þingeyjarsveit og SSNE.
Nefndin þakkar verkefnastjóra fyrir góða vinnu.
Nefndin felur sveitarstjóra að fullvinna innviðagreininguna og leggja aftur fyrir nefndina svo hægt sé að nýta hana sem kynningarefni fyrir gæði Þingeyjarsveitar.

8.Mývatnsstofa - fréttabréf
Málsnúmer 2609045Vakta málsnúmer
Fyrir atvinnu- og nýsköpunarnefnd liggur til kynningar fréttabréf Mývatnsstofu frá september 2026.
Lagt fram til kynningar.
Fundi slitið - kl. 12:30.
Samþykkt að salan fari fram á vefsíðunni hlunnindi.is. Rjúpnaveiði verður því óheimil á Þeistareykjum án leyfis.
Samþykkt að Gunnar Óli Hákonarson verði tengiliður sveitarfélagsins við veiðimenn.
Sveitarstjóra falið framlengja samning við hlunnindi.is og auglýsa skipulagða rjúpnaveiði á Þeistareykjum á þar til bærum miðlum.
Samþykkt samhljóða.