Fara í efni

Uppbygging, atvinna og nýsköpun - staða mála

Málsnúmer 2608053

Vakta málsnúmer

Atvinnu- og nýsköpunarnefnd Þingeyjarsveit - 30. fundur - 05.10.2026

Undir þessum lið voru rædd eftirfarandi atvinnu- og nýsköpunarmál:

Hönnunarþing um orku, á Stéttinni á Húsavík í september sl.

Samherji fiskþurrkun á Laugum, staða mála.

Uppbygging á Kárhóli og möguleikar á gestastofu.

Málefni rædd við þingmenn í kjördæmaviku og snúa að atvinnumálum.

Skýrsla Byggðastofnunar sem kom út í september, Hvar eru ríkisstörfin?

Fyrirhuguð hækkun VSK á baðlón.
Lagt fram til kynningar.

Atvinnu- og nýsköpunarnefnd Þingeyjarsveitar telur áform ríkisstjórnarinnar um hækkun virðisaukaskatts á baðlón úr 11% í 24% frá byrjun árs 2027 varhugaverð. Jarðböðin í Mývatnssveit, sem eru mikilvægur hluti ferðaþjónustunnar á svæðinu, hafa staðið í milljarða fjárfestingum og munu áform ríkisstjórnarinnar breyta þeirra rekstrarforsendum. Mikilvægi Jarðbaðanna nær langt út fyrir eigin rekstur, styður við störf, eflir aðra þjónustu og skapar verðmæti í sveitarfélaginu. Nefndin hvetur stjórnvöld til að endurskoða áformin og falla frá þeim.

Atvinnu- og nýsköpunarnefnd ítrekar mikilvægi allra starfa í sveitarfélaginu og væntir þess að starfsemi Samherja á Laugum hefjist sem allra fyrst aftur.
Getum við bætt efni þessarar síðu?