Fara í efni

Þeistareykir - rjúpnaveiði - reglur og sala veiðileyfa

Málsnúmer 2209049

Vakta málsnúmer

Atvinnu- og nýsköpunarnefnd Þingeyjarsveit - 30. fundur - 05.10.2026

Fyrirkomulag rjúpnaveiði á Þeistareykjum hefur verið með sama hætti frá árinu 2021. Skipuleg rjúpnaveiði er heimil með takmörkuðum fjölda leyfa gegn gjaldi sem miðast við miðgildi gjalda annarra söluaðila á hlunnindi.is. Salan fer fram á vefsíðunni hlunnindi.is. Rjúpnaveiði er óheimil á Þeistareykjum án leyfis.
Atvinnu- og nýsköpunarnefnd samþykkir að viðhaft verði sama fyrirkomulag á rjúpnaveiði á Þeistareykjum og undanfarin ár. Heimil verður skipulögð rjúpnaveiði á Þeistareykjum á heimilum veiðidögum gegn gjaldi sem miðast við miðgildi gjalda annarra söluaðila á hlunnindi.is.
Samþykkt að salan fari fram á vefsíðunni hlunnindi.is. Rjúpnaveiði verður því óheimil á Þeistareykjum án leyfis.
Samþykkt að Gunnar Óli Hákonarson verði tengiliður sveitarfélagsins við veiðimenn.
Sveitarstjóra falið framlengja samning við hlunnindi.is og auglýsa skipulagða rjúpnaveiði á Þeistareykjum á þar til bærum miðlum.

Samþykkt samhljóða.
Getum við bætt efni þessarar síðu?