Atvinnu- og nýsköpunarnefnd Þingeyjarsveit
Dagskrá
1.Fjallskiladeildir 2022-2026
Málsnúmer 2502018Vakta málsnúmer
Fyrir atvinnu- og nýsköpunarnefnd liggur fjallskilasamþykkt 760/2023 til umræðu.
2.Áfangastaðaáætlun Norðurlands - Uppfærsla verkefna
Málsnúmer 2509050Vakta málsnúmer
Fyrir atvinnu- og nýsköpunarnefnd liggur til kynningar og umræðu áfangastaðaáætlun Norðurlands með gögnum frá stöðufundi 21. janúar 2026.
Í aðgerðaráætlun um framtíð ferðaþjónustu í Þingeyjarsveit er fyrsti liður í uppbyggingu innviða „Áætlanagerð fyrir uppbyggingu áfangastaða“. Lagt er til að nefndin geri tillögu til sveitarstjórnar um markvissa fjölgun og uppbyggingu áfangastaða í sveitarfélaginu.
Þau verkefni sem nú eru á áfangastaðaáætlun eru:
1.
Aldeyjarfoss og Hrafnabjargafoss
2.
Göngu og hjólastígur Mývatnssveit
3.
Þeistareykir - hverasvæðið
4.
Höfði í Mýv - viðhald og endurnýjun stíga
5.
Deiliskipulag Kálfaströnd

Atvinnu- og nýsköpunarnefnd lýsir ánægju sinni með þá vinnu sem þegar hefur farið hefur fram og veltir fyrir sér hvort ekki séu fleiri staðir sem ættu að fá sinn sess inn í áætluninni með það að markmiði að dreifa ferðamönnum enn frekar um okkar víðfeðma sveitarfélag enda er það ríkt af áhugaverðum stöðum.
Nefndin leggur til við sveitarstjórn að farið verði í íbúasamráð með það að markmiði að fjölga áfangastöðum í sveitarfélaginu.
Samþykkt samhljóða.
Nefndin leggur til við sveitarstjórn að farið verði í íbúasamráð með það að markmiði að fjölga áfangastöðum í sveitarfélaginu.
Samþykkt samhljóða.
3.Vinnustofa um sjálfbæra þróun þjónustukjarna í ferðaþjónustu
Málsnúmer 2601059Vakta málsnúmer
Markaðsstofa Norðurlands í samstarfi við Mývatnsstofu og Markþing, boðar til vinnustofu um sjálfbæra þróun þjónustukjarna í ferðaþjónustu.
Markmiðið er að fjölga gestum sem dvelja lengur á Norðurlandi allt árið um kring.
Vinnustofan verður haldinn á Sel-Hóteli þriðjudaginn 10. febrúar n.k. kl. 10:00 - 16:00.
Markmiðið er að fjölga gestum sem dvelja lengur á Norðurlandi allt árið um kring.
Vinnustofan verður haldinn á Sel-Hóteli þriðjudaginn 10. febrúar n.k. kl. 10:00 - 16:00.
Fundi slitið - kl. 10:30.
Samþykkt samhljóða.