Fjallskiladeildir 2022-2026
Málsnúmer 2502018
Vakta málsnúmerAtvinnu- og nýsköpunarnefnd Þingeyjarsveit - 18. fundur - 07.02.2025
Lögð fram drög að breytingu á erindisbréfi fjallskilanefnda í Þingeyjarsveit.
Atvinnu- og nýsköpunarnefnd samþykkir fyrirliggjandi drög að breytingum á erindisbréfi fjallskilastjóra og vísar þeim til sveitarstjórnar.
Atvinnu- og nýsköpunarnefnd Þingeyjarsveit - 18. fundur - 07.02.2025
Lögð fram til kynningar fundargerð af fundi formanns atvinnu- og nýsköpunarnefndar og sveitarstjóra með formönnum fjallskilastjórna í Þingeyjarsveit.
Atvinnu- og nýsköpunarnefnd Þingeyjarsveit - 21. fundur - 18.08.2025
Nefndin fór yfir fjallskilamál.
Nefndin leggur áherslu á að allar fyrirspurnir um styrki vegna fjallskilamála komi skriflega til nefndarinnar svo hægt verði að taka afstöðu til þeirra.
Atvinnu- og nýsköpunarnefnd Þingeyjarsveit - 26. fundur - 04.02.2026
Fyrir atvinnu- og nýsköpunarnefnd liggur fjallskilasamþykkt 760/2023 til umræðu.
Atvinnu- og nýsköpunarnefnd leggur áherslu á að notendur afrétta fari í einu og öllu eftir fjallskilasamþykkt. Sérstaklega skal bent á aðra málsgrein 8. greinar samþykktarinnar þar sem segir eftirfarandi: "Ekki skal hefja upprekstur til afréttar að vori nema í samráði við fjallskilastjóra. "
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.