Fara í efni

Sveitarstjórn Þingeyjarsveitar

73. fundur 12. febrúar 2026 kl. 13:00 - 13:57 í Þingey
Nefndarmenn
  • Gerður Sigtryggsdóttir
  • Knútur Emil Jónasson
  • Halldór Þorlákur Sigurðsson
  • Jóna Björg Hlöðversdóttir
  • Árni Pétur Hilmarsson
  • Ragnhildur Hólm Sigurðardóttir
  • Eyþór Kári Ingólfsson
  • Arnór Benónýsson
  • Haraldur Bóasson
Starfsmenn
  • Margrét Hólm Valsdóttir
Fundargerð ritaði: Margrét Hólm Valsdóttir
Dagskrá
Oddviti setti fund og kannaði lögmæti fundar. Engar athugasemdir voru gerðar við fundarboð.
Einnig óskaði hann eftir að bæta eftirtöldum liðum in á dagskrá fundarins:
Liður 8 - Stórutjarnaskóli - Birna Davíðsdóttir skólastjóri - uppsögn.
Liður 9 - Ferðafélag Akureyrar - staða fjallaskála og ósk um styrk.
Liður 17. - Mývatn og Laxá - endurskoðun stjórnunar- og verndaráætlunar verndarsvæðis.
Samþykkt samhljóða.

1.Atvinnu- og nýsköpunarnefnd Þingeyjarsveit - 26

Málsnúmer 2602001FVakta málsnúmer

Fyrir sveitarstjórn liggur til staðfestingar fundargerð 26. fundar atvinnu- og nýsköpunarnefndar frá 4. febrúar. Fundargerðin er í þremur liðum. Liður 2 þarfnast afgreiðslu sveitarstjórnar og er sérliður á fundinum.
Til máls tók undir lið 1: Knútur.

Arnór kynnti fundargerðina.

2.Umhverfisnefnd - 33

Málsnúmer 2602002FVakta málsnúmer

Fyrir sveitarstjórn liggur til staðfestingar fundargerð 33. fundar umhverfisnefndar frá 5. febrúar. Fundargerðin er í þremur liðum. Engir liðir þarfnast afgreiðslu sveitarstjórnar.
Til máls tók undir lið 1: Knútur.

Árni Pétur kynnti fundargerðina.

3.Íþrótta-, tómstunda- og menningarnefnd - beiðni um lausn frá störfum

Málsnúmer 2601036Vakta málsnúmer

Fyrir sveitarstjórn liggur beiðni frá Kötlu Valdísi Ólafsdóttur um lausn frá störfum í íþrótta-, tómstunda- og menningarnefnd.
Til máls tóku: Knútur.
Sveitarstjórn samþykkir að veita Kötlu Valdísi Ólafsdóttur leyfi frá störfum í íþrótta-, tómstunda- og menningarnefnd og þakkar henni fyrir vel unnin störf.

Samþykkt samhljóða.

4.Skýrsla sveitarstjóra

Málsnúmer 2303021Vakta málsnúmer

Skýrsla sveitarstjóra flutt munnlega og til kynningar.
Gerður Sigtryggsdóttir sveitarstjóri gerði grein fyrir helstu störfum sínum síðustu vikur.

Til máls tóku: Arnór og Knútur.

5.Umhverfisnefnd - beiðni um lausn frá störfum

Málsnúmer 2602004Vakta málsnúmer

Fyrir sveitarstjórn liggur beiðni frá Rúnari Ísleifssyni um lausn frá störfum í umhverfisnefnd. Einnig liggur fyrir beiðni frá Olgu Hjaltalín Ingólfsdóttur varamanni um lausn frá störfum.
Sveitarstjórn samþykkir að veita Rúnari Ísleifssyni og Olgu Hjaltalín Ingólfsdóttur lausn frá störfum í umhverfisnefnd og þakkar þeim fyrir vel unnin störf.

Samþykkt samhljóða.

6.SSNE - drög að loftslagsstefnu Norðurlands eystra

Málsnúmer 2601024Vakta málsnúmer

Fyrir sveitarstjórn liggja drög SSNE að loftslagsstefnu Norðurlands eystra en stjórn SSNE samþykkti á fundi sínum þann 8. janúar sl. að senda meðfylgjandi drög til umfjöllunar í sveitarstjórnum innan SSNE.
Sveitarstjórn samþykkir framlögð drög að loftslagsstefnu Norðurlands eystra.

Samþykkt samhljóða.

7.Kosningar í nefndir, ráð og stjórnir

Málsnúmer 2206018Vakta málsnúmer

Fyrir sveitarstjórn liggur tillaga um eftirtaldar breytingar um kosningar í nefndir, ráð og stjórnir.

Nýr aðalmaður í íþrótta-, tómstunda-, og menningarnefnd verður Olga Hjaltalín Ingólfsdóttir og varamaður verður Haraldur Bóasson.

Nýr aðalmaður í umhverfisnefnd verður Elísabet Sigurðardóttir. Nýr varamaður í umhverfisnefnd verður Halldór Þorlákur Sigurðsson.



Til máls tók: Eyþór Kári:

Tillagan er samþykkt samhljóða.

8.Stórutjarnaskóli - Birna Davíðsdóttir skólastjóri - uppsögn

Málsnúmer 2602015Vakta málsnúmer

Fyrir sveitarstjórn liggur uppsagnarbréf frá Birnu Davíðsdóttur þar sem hún segir upp starfi sínu sem skólastjóri Stórutjarnaskóla.
Sveitarstjórn þakkar Birnu Davíðsdóttur fyrir góð störf í þágu sveitarfélagsins í þau 17 ár sem hún hefur starfað hjá sveitarfélaginu og óskar henni velfarnaðar í framtíðinni.
Sveitarstjórn felur sviðsstjóra fjölskyldusviðs að vinna að undirbúningi auglýsingar og leggja fyrir sveitarstjórn. s

Samþykkt samhljóða.

9.Ferðafélag Akureyrar - staða fjallaskála og ósk um styrk

Málsnúmer 2505006Vakta málsnúmer

Fyrir sveitarstjórn liggur erindi frá Ferðafélagi Akureyri er varðar afslátt af fasteignaskatti af skálum félagsins í Þingeyjarsveit. Erindið var áður á dagskrá sveitarstjórnar á 59. fundi þann 22. mai 2025.
Til máls tók: Knútur.

Sveitarstjórn samþykkir að álagning fasteignaskatts á skála FA sem og aðrar sambærilegar fasteignir skuli fara eftir 3.mgr., 3.gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995 enda falla undir þann flokk allar aðrar fasteignir en þær sem um ræðir í flokki a og b. Sveitarstjórn er heimilt skv. 2.mgr., 5.gr. sömu laga að veita styrki til greiðslu fasteignaskatts af fasteignum þar sem fram fer starfsemi sem ekki er rekin í ágóðaskyni, einnig sbr. reglur Þingeyjarsveitar um styrki til greiðslu fasteignaskatts til félaga og félagasamtaka. Sótt er um slíka styrki á þjónustugátt Þingeyjarsveitar. Sveitarstjóra er falið að svara erindinu.

Samþykkt samhljóða.

10.Samþykkt um stjórn og fundarsköp Þingeyjarsveitar

Málsnúmer 2206003Vakta málsnúmer

Fyrir sveitarstjórn liggur til annarrar umræðu, breyting á samþykkt um stjórn og fundarsköp Þingeyjarsveitar. Breytingin felur í sér að fyrir næsta kjörtímabíl verður sveitarstjórnarfulltrúum fækkað úr níu í sjö með breytingum á 1.gr. og 2.gr. samþykktanna.
Sveitarstjórn samþykkir framlagða breytingu á samþykktum um stjórn og fundarsköp Þingeyjarsveitar og felur sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs að senda til ráðuneytis til staðfestingar.

Samþykkt samhljóða.
Var 2.2151 kr en verður 2.151 kr.

11.Gjaldskrár 2026

Málsnúmer 2505090Vakta málsnúmer

Við framlagningu gjaldskráa fyrir árið 2026 slæddist inn ein villa í gjaldskrá malarnáma, í gjaldalið sands 0-8 mm. Sú villa hefur verið leiðrétt og er því gjaldskráin lögð aftur fram.
Til máls tók: Knútur.
Sveitarstjórn samþykkir leiðrétta gjaldskrá malarnáma, gjaldalið sands 0-8 mm og felur sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs að birta gjaldskrána á heimasíðu sveitarfélagsins.

Samþykkt samhljóða.

12.Félag eldri borgara í Þingeyjarsveit - styrkbeiðni

Málsnúmer 2411016Vakta málsnúmer

Fyrir sveitarstjórn liggur beiðni frá Félagi eldri borgara í Þingeyjarsveit um ferðastyrk fyrir árið 2026.
Til máls tók: Gerður.

Sveitarstjórn samþykkir að veita Félagi eldri borgara í Þingeyjarsveit ferðastyrk 2026 að fjárhæð kr. 850.000 sem færist á málaflokk 02-420.

Samþykkt samhljóða.

13.Þingeyjarsveit - samningar við ungmenna-, íþrótta- og æskulýðsfélög

Málsnúmer 2209058Vakta málsnúmer

Fyrir sveitarstjórn liggja til afgreiðslu drög að samstarfssamningum við íþróttafélög í Þingeyjarsveit ásamt vinnuskjölum. Málinu var frestað á síðasta sveitarstjórnarfundi.
Til máls tók: Knútur.
Sveitarstjórn samþykkir framlögð drög að samstarfssamningum við íþrótta- og ungmennafélög í Þingeyjarsveit. Sveitarstjórn felur verkefnastjóra æskulýðs-, tómstunda- og menningarmála að fullgera samninga við hvert og eitt félag og leggja þá fyrir sveitarstjórn til samþykktar.

Samþykkt samhljóða.

14.Ferðamálasamtök Þingeyjarsveitar - uppgjör

Málsnúmer 2602006Vakta málsnúmer

Fyrir sveitarstjórn liggur erindi frá Gísla Sigurðssyni skrifstofustjóra er varðar slit Ferðamálafélags Þingeyjarsveitar árið 2022. Óskað er eftir að færa upphæð kr. 1.028.828 kr af lánardrottnareikningi Ferðamálasamtaka Þingeyjarsveitar sem styrk inn á málaflokk 13 - atvinnumál og ferðaþjónustu en sveitarfélaginu var færð þessi upphæð við slit félagsins og hefur hún staði óhreyfð á lánardrottnareikningi. Óskað er eftir að upphæðin fylgi bókhaldsárinu 2025.
Sveitarstjórn samþykkir að inneign á reikningi Ferðamálasamtaka Þingeyjarsveitar, kr. 1.028.828 verði færð sem styrkur inn á málaflokk 13 - atvinnumál og ferðaþjónustu en sveitarfélaginu var færð þessi upphæð við slit félagsins. Sveitarstjórn samþykkir að styrkurinn fylgi bókhaldsárinu 2025 og felur aðalbókara að afgreiða tilfærsluna.

Samþykkt samhljóða.

15.Foreldrafélag Stórutjarnaskóla - ályktun fundargerðar og ákall til sveitarstjórnar varðandi endurnýjun leiksvæðis

Málsnúmer 2602007Vakta málsnúmer

Fyrir sveitarstjórn liggur ályktun aðalfundar foreldrafélags Stórutjarnarskóla er varðar endurnýjun leiksvæðis skólans.
Sveitarstjórn þakkar erindið. Í fjárhagsáætlun ársins er gert ráð fyrir kaupum á leiktækjum fyrir allar skólalóðir sveitarfélagsins og hafa kaupin þegar farið fram. Við uppsetningu tækjanna á vormánuðum, verða leiksvæðin yfirfarin og bætt m.t.t. öryggis barnanna. Sveitarstjórn felur sveitarstjóra að svara erindinu.

Samþykkt samhljóða.

16.Samkaup - snyrtingar við Krambúðina

Málsnúmer 2602009Vakta málsnúmer

Fyrir sveitarstjórn liggur erindi frá Samkaupum þar sem óskað er eftir samtali vegna snyrtinga sem Samkaup á og rekur við Krambúðina í Reykjahlíð.
Sveitarstjórn þakkar erindið og undirstrikar að rekstur snyrtinga í atvinnufyrirtækjum flokkast ekki undir verkefni sveitarfélaga. En þar sem fyrirspurnin er almenns eðlis felur sveitarstjórn sveitarstjóra að funda með forsvarsmönnum Samkaupa og kalla eftir upplýsingum.

Samþykkt samhljóða.

17.Mývatn og Laxá - endurskoðun stjórnunar- og verndaráætlunar verndarsvæðis

Málsnúmer 2512010Vakta málsnúmer

Fyrir sveitarstjórn liggur erindi frá Nátturuverndarstofnun þar sem óskað er að sveitarfélagið skipi aðila í samráðshóp vegna endurskoðunar stjórnunar- og verndaráætlunar fyrir verndarsvæði Laxár og Mývatns.
Sveitarstjórn samþykkir að tilnefna Árna Pétur Hilmarsson í samráðshóp um stjórnunar- og verndaráætlun Mývatns og Laxár og felur sveitarstjóra að tilkynna tilnefninguna til Náttúruverndarstofnunar.

Samþykkt samhljóða.

18.Mývatn og Laxá - endurskoðun stjórnunar- og verndaráætlunar verndarsvæðis

Málsnúmer 2512010Vakta málsnúmer

Við endurskoðun stjórnunar- og verndaráætlunar Mývatns og Laxár hefur Náttúruverndarstofnun óskað eftir tilnefningu sameiginlegs fulltrúa Norðurþings og Þingeyjarsveitar í starfshóp verkefnisins.
Sveitarstjórn tilnefnir Brynju Dögg Ingólfsdóttur skipulagsfulltrúa sameiginlegan fulltrúa Norðuþings og Þingeyjarsveitar í starfshóp um verndaráætlun Mývatns og Laxár. Að fenginni samþykkt frá Norðurþingi felur sveitarstjórn sveitarstjóra að tilkynna Náttúruverndarstofnun um tilnefninguna.

Samþykkt samhljóða.

19.Skólaakstur 2023 - 2026 - framlenging samninga

Málsnúmer 2602012Vakta málsnúmer

Fyrir sveitarstjórn liggja til endurskoðunar, samningar við skólabílstjóra sem renna út að loknu skólaárinu 2025-2026.

Til máls tók: Knútur.

Sveitarstjórn samþykkir að gengið verði til samninga við núverandi skólabílstjóra um framlengingu til eins árs sbr. heimild í 4.gr. verksamninga frá 2023. Sveitarstjórn felur sviðsstjóra fjölskyldusviðs að óska eftir viðræðum um framlengingu við núverandi samningshafa.

Samþykkt samhljóða.

20.Hitaveita Jarðbaðanna hf. - meintur óheimill rekstur á ábyrgð Þingeyjarsveitar

Málsnúmer 2601048Vakta málsnúmer

Fyrir sveitarstjórn liggur erindi frá Landeigendum Reykjahlíðar ehf frá 23. janúar sl. og drög að svari. Um ræðir áréttun og ítrekun á áður sendum erindum til Skútustaðahrepps og síðar til Þingeyjarsveitar á árunum frá 2020 til 2022. Erindin fjalla um meintan óheimilan rekstur Jarðbaðanna ehf á hitaveitu en Jarðböðin fá afhent kalt vatn úr kaldavatnslögn sveitarfélagsins úr Austariselslindum. Jarðböðin nýta síðan jarðvarma frá Landsvirkjun til þess að hita upp vatnið til eigin nota.



Ragnhildur Hólm bar upp vanhæfi, samþykkt samhljóða. Ragnhildur vék af fundi kl. 13.42.

Sveitarstjórn hafnar ásökunum Landeigenda Reykjahlíðar um að sveitarfélagið beri ábyrgð á meintum óheimilum rekstri hitaveitu Jarðbaðanna ehf og felur sveitarstjóra að svara erindinu skv. fyrirliggjandi drögum.

Samþykkt samhljóða.

Ragnhildur kom aftur til fundar kl. 13.44.

21.Fasteignaskattur - reglur um styrki til greiðslu fasteignaskatts

Málsnúmer 2405033Vakta málsnúmer

Fyrir sveitarstjórn liggja til endurskoðunar drög að reglum um styrki til greiðslu fasteignaskatts til félaga- og félagasamtaka.
Sveitarstjórn samþykkir framlagðar reglur um styrki til greiðslu fasteignaskatts til félaga- og félagasamtaka og felur sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs að birta þær á heimasíðu. Sótt um um styrkina á þjónustugátt Þingeyjarsveitar.

Samþykkt samhljóða.

22.Áfangastaðaáætlun Norðurlands Uppfærsla verkefna

Málsnúmer 2509050Vakta málsnúmer

Á 26. fundi atvinnu- og nýsköpunarnefndar var eftirfarandi bókað varðandi vinnu við áfangastaðaáætlun Norðurlands ásamt aðgerðaráætlun:

"Atvinnu- og nýsköpunarnefnd lýsir ánægju sinni með þá vinnu sem þegar hefur farið hefur fram og veltir fyrir sér hvort ekki séu fleiri staðir sem ættu að fá sinn sess inn í áætluninni með það að markmiði að dreifa ferðamönnum enn frekar um okkar víðfeðma sveitarfélag enda er það ríkt af áhugaverðum stöðum. Nefndin leggur til við sveitarstjórn að farið verði í íbúasamráð með það að markmiði að fjölga áfangastöðum í sveitarfélaginu. Samþykkt samhljóða."
Til máls tók: Gerður.

Sveitarstjórn samþykkir að haft verði samráð við íbúa á heimasíðu Þingeyjarsveitar, um tillögur að nýjum áfangastöðum í sveitarfélaginu og felur sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs að vinna málið áfram.

Samþykkt samhljóða.

23.Landhelgisgæslan - hvatning til umsagnar þingsályktunar um staðsetningu þyrlu Landhelgisgæslunnar

Málsnúmer 2602001Vakta málsnúmer

Fyrir sveitarstjórn liggur erindi frá Atlantsflugi ehf þar sem hvatt er til umsagnar um þingsályktunartillögu um staðsetningu þyrlu Landhelgisgæslunnar. Frestur til umsagnar er 12. febrúar n.k.
Til máls tók: Knútur.

Sveitarstjórn sér ekki ástæðu til að senda inn umsögn en tekur undir umsögn SSNE frá 11. febrúar.

Samþykkt samhljóða.

24.Umhverfis- og samgöngunefnd - umsögn 322. mál - Samgönguáætlun fyrir árin 2026-2040 ásamt fimm ára aðgerðaráætlun fyrir árin 2026-2030

Málsnúmer 2601041Vakta málsnúmer

Fyrir sveitarstjórn liggur til umsagnar 322. mál frá nefndar- og greiningarsviði Alþingis, Samgönguáætlun fyrir árin 2026-2040 ásamt fimm ára aðgerðaráætlun fyrir árin 2026-2030. Frestur til að senda inn umsögn er til og með 9. febrúar.
SSNE hefur sent inn umsögn f.h. aðildarsveitarfélaganna. Þar koma fram áherslur sveitarstjórnar sem eru helstar að brú yfir Skjálfandafljót við Goðafoss verði flýtt, Bárðardalsvegur vestari verði færður fram og aukin áhersla verði lögð á útrýmingu malarvega.

Samþykkt samhljóða.

25.Samráðsgátt stjórnvalda - breytingar á lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir

Málsnúmer 2602010Vakta málsnúmer

Fyrir sveitarstjórn liggur erindi frá Heilbrigðiseftirliti Norðurlands eystra þar sem vakin er athygli á drögum að frumvarpi um breytingar á lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir sem eru nú til umsagnar í samráðsgátt stjórnvalda.
Til máls tóku: Gerður og Knútur.

Sveitarstjórn lýsir áhyggjum sínum af þeim áhrifum sem umrædd lagabreyting mun hafa á sveitarfélög. Sveitarstjórn lýsir óánægju sinni með að ekki skuli hafa verið gert kostnaðarmat vegna viðbótarverkefna sem falla munu á sveitarfélögin og felur SSNE að senda inn umsögn f.h. sveitarfélagsins.

Samþykkt samhljóða.

26.Aðalheiður Kjartansdóttir - þorrablót Ljósvetningabúð - umsagnarbeiðni vegna tækifærisleyfis

Málsnúmer 2601028Vakta málsnúmer

Fyrir sveitarstjórn liggur til kynningar jákvæð umsögn sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs vegna umsóknar Aðalheiðar Kjartansdóttur varðandi Þorrablót Ljósvetninga.

27.Ungmennafélagið Efling - þorrablót á Breiðamýri - umsagnarbeiðni vegna tækifærisleyfis

Málsnúmer 2601015Vakta málsnúmer

Fyrir sveitarstjórn liggur til kynningar jákvæð umsögn sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs vegna umsóknar Ungmennafélagsins Eflingar um tækifærisleyfi vegna þorrablóts í Félagsheimilinu Breiðumýri.

28.Birna Davíðsdóttir - Þorrablót Fnjóskdæla - umsagnarbeiðni vegna tækifærisleyfis

Málsnúmer 2601008Vakta málsnúmer

Fyrir sveitarstjórn liggur til kynningar jákvæð umsögn sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs vegna umsóknar Birnu Davíðsdóttur um tækifærisleyfi vegna þorrablóts Fnjóskdæla.

29.Hjúkrunarheimili á Húsavík - opnun tilboða

Málsnúmer 2602013Vakta málsnúmer

Fyrir sveitarstjórn liggur til kynningar skjal frá Framkvæmdasýslunni er varðar opnun tilboða í húsnæði fyrir hjúkrunarheimili á Húsavík. Sex tilboð bárust.

30.Svæðisráð norðursvæðis - fundargerðir

Málsnúmer 2311077Vakta málsnúmer

Fyrir sveitarstjórn liggur til kynningar fundargerð 121. fundar stjórnar svæðisráðs norðursvæðis Vatnajökulsþjóðgarðs frá 3. nóvember s.l.

31.Svæðisráð norðursvæðis - fundargerðir

Málsnúmer 2311077Vakta málsnúmer

Fyrir sveitarstjórn liggur til kynningar fundargerð 123. fundar stjórnar svæðisráðs norðursvæðis Vatnajökulsþjóðgarðs frá 19. janúar s.l.

32.Samband íslenskra sveitarfélaga - Fundargerðir

Málsnúmer 2306029Vakta málsnúmer

Fyrir sveitarstjórn liggur til kynningar fundargerð 992. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 23. janúar s.l.

33.Samtök sveitarfélaga á köldum svæðum - fundargerðir

34.Stjórn Norðurorku - fundargerðir

Málsnúmer 2305038Vakta málsnúmer

Fyrir sveitarstjórn liggja til kynningar fundargerðir 317. og 318. fundar stjórnar Norðurorku hf. frá 9.desember 2025 og 3. febrúar 2026

Fundi slitið - kl. 13:57.

Getum við bætt efni þessarar síðu?