Fara í efni

Samráðsgátt stjórnvalda - breytingar á lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir

Málsnúmer 2602010

Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn Þingeyjarsveitar - 73. fundur - 12.02.2026

Fyrir sveitarstjórn liggur erindi frá Heilbrigðiseftirliti Norðurlands eystra þar sem vakin er athygli á drögum að frumvarpi um breytingar á lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir sem eru nú til umsagnar í samráðsgátt stjórnvalda.
Til máls tóku: Gerður og Knútur.

Sveitarstjórn lýsir áhyggjum sínum af þeim áhrifum sem umrædd lagabreyting mun hafa á sveitarfélög. Sveitarstjórn lýsir óánægju sinni með að ekki skuli hafa verið gert kostnaðarmat vegna viðbótarverkefna sem falla munu á sveitarfélögin og felur SSNE að senda inn umsögn f.h. sveitarfélagsins.

Samþykkt samhljóða.
Getum við bætt efni þessarar síðu?