Landhelgisgæslan - hvatning til umsagnar þingsályktunar um staðsetningu þyrlu Landhelgisgæslunnar
Málsnúmer 2602001
Vakta málsnúmerSveitarstjórn Þingeyjarsveitar - 73. fundur - 12.02.2026
Fyrir sveitarstjórn liggur erindi frá Atlantsflugi ehf þar sem hvatt er til umsagnar um þingsályktunartillögu um staðsetningu þyrlu Landhelgisgæslunnar. Frestur til umsagnar er 12. febrúar n.k.
Sveitarstjórn sér ekki ástæðu til að senda inn umsögn en tekur undir umsögn SSNE frá 11. febrúar.
Samþykkt samhljóða.