Fara í efni

Gjaldskrár 2026

Málsnúmer 2505090

Vakta málsnúmer

Fræðslu- og velferðarnefnd Þingeyjarsveit - 27. fundur - 05.06.2025

Farið yfir þær gjaldskrár sem undir nefndina heyra til undirbúnings fjárhagsáætlunar næsta árs.
Farið yfir gjaldskrár.
Frá stjórnendum leikskóla hefur borist sú ósk um breytingu á gjaldskrá leikskóla að stjórnendur fái heimild til að innheimta sk. ,,bleyjugjald“ eða gefa foreldrum kost á að skrá sig í bleyjuáskrift.
Markmiðið er að minnka álag á starfsmenn og bæta skilvirkni í starfinu vegna utanumhalds og samskipta tengd móttöku bleyja frá foreldrum. Stjórnendur telja að bætt þjónusta fyrir foreldra verði vel þegin þar sem slík þjónusta kæmi til með að minnka einnig álag á þá.
Nefndin tekur vel í hugmyndina og felur sviðsstjóra fjölskyldusviðs að útfæra tillögur að fyrirkomulagi í samráði við leikskólastjóra Þingeyjarsveitar.

Umræðu um gjaldskrár frestað til næsta fundar.

Umhverfisnefnd - 27. fundur - 16.06.2025

Fyrir nefndinni liggja tvær gjaldskrár annar svegar um rotþrær og hins vegar sorphirðu.
Nefndin leggur til að gjaldskrárnar verði óbreyttar.

Skipulagsnefnd - 37. fundur - 18.06.2025

Farið yfir þær gjaldskrár sem undir nefndina heyra til undirbúnings fjárhagsáætlunar næsta árs.
Umræður um gjaldskrár. Verður framhaldið á næsta fundi.
Getum við bætt efni þessarar síðu?