Umhverfisnefnd
Dagskrá
1.Lundarbrekka 4 - umsókn um framkvæmdaleyfi vegna skógræktar
Málsnúmer 2505010Vakta málsnúmer
Umsögn um skógrækt í landi Lundabrekku.
Nefndin gerir ekki athugasemdir við framkvæmdina.
2.Umhverfisátak í Þingeyjarsveit - skipulagsmál
Málsnúmer 2505083Vakta málsnúmer
Sveitarfélaginu hefur borist fjöldi ábendinga vegna uppsöfnun rusls í sveitarfélaginu og til hvaða aðgerða sveitarfélagið ætli að taka vegna þessa.
Umhverfisnefnd leggur til að farið verði í umhverfisátak í sveitarfélaginu þar sem kynnt verði fyrir íbúum hvaða leiðir eru fyrir hendi til að fegra umhverfið og losna við óæskilegan úrgang s.s. bílhræ, járn, múrbrot ofl. Nefndin felur sviðsstjóra umhverfis- og framkvæmdasviðs að koma málinu í farveg fyrir haustið.
3.Gjaldskrár 2026
Málsnúmer 2505090Vakta málsnúmer
Fyrir nefndinni liggja tvær gjaldskrár annar svegar um rotþrær og hins vegar sorphirðu.
Nefndin leggur til að gjaldskrárnar verði óbreyttar.
4.Sorphirða 2025 - útboð
Málsnúmer 2505040Vakta málsnúmer
Fyrir liggur uppkast að verklýsingu vegna útboðs sorphirðu.
Nefndin þakkar sviðsstjóra umhverfis- og framkvæmdasviðs fyrir ítarlega og góða vinnu. Nefndin leggur til við sveitarstjórn að samþykkja verklýsinguna með áorðnum breytingum.
5.Loftslagsstefna Þingeyjarsveitar
Málsnúmer 2503026Vakta málsnúmer
Lagt fram uppkast að loftslagsstefnu Þiþngeyjarsveitar 2025-2040.
Nefndin þakkar Arnheiði Rán fyrir góð störf og ánægjulegt samstarf við gerð loftslagsstefnunar. Nefndin leggur til við sveitarstjórn að loftslagsstefnan verði samþykkt.
6.Moltugerðarvélar - verðfyrirspurn
Málsnúmer 2505077Vakta málsnúmer
Sviðsstjóri umhverfis og framkvæmdasviðs sendi út verðfyrirspurn til fimm fyrirtækja 19.05 um moltuvélar. Fyritækin höfðu til 05.06 til að svara. Eitt tilboð barst.
Nefndin felur formanni nefndarinnar og sviðsstjóra umhverfis- og framkvæmdarsviðs að ræða við bjóðanda og vinna málið áfram.
Fundi slitið - kl. 16:30.