Fara í efni

Sorphirða 2025 - útboð

Málsnúmer 2505040

Vakta málsnúmer

Umhverfisnefnd - 27. fundur - 16.06.2025

Fyrir liggur uppkast að verklýsingu vegna útboðs sorphirðu.
Nefndin þakkar sviðsstjóra umhverfis- og framkvæmdasviðs fyrir ítarlega og góða vinnu. Nefndin leggur til við sveitarstjórn að samþykkja verklýsinguna með áorðnum breytingum.

Sveitarstjórn Þingeyjarsveitar - 61. fundur - 26.06.2025

Á 27. fundi umhverfisnefndar var eftirfarandi bókað undir dagskrárlið 4 varðandi útboð á sorphirðu í Þingeyjarsveit.

"Nefndin leggur til við sveitarstjórn að samþykkja verklýsinguna með áorðnum breytingum."
Til máls tóku: Árni Pétur, Jóna Björg og Gerður.

Sveitarstjórn samþykkir framlagða verklýsingu útboðs á sorphirðu í Þingeyjarsveit og felur sviðsstjóra umhverfis- og framkvæmdasviðs að vinna málið áfram.

Samþykkt samhljóða.
Getum við bætt efni þessarar síðu?