Fara í efni

Fræðslu- og velferðarnefnd Þingeyjarsveit

34. fundur 19. mars 2026 kl. 14:30 - 16:30 í Reykjahlíðarskóla
Nefndarmenn
  • Gunnhildur Hinriksdóttir
  • Anna Bragadóttir
  • Sigurbjörn Árni Arngrímsson
  • Ragnhildur Hólm Sigurðardóttir
  • Böðvar Baldursson
Starfsmenn
  • Hjördís Sigríður Albertsdóttir
Fundargerð ritaði: Hjördís Albertsdóttir
Dagskrá
Aðrir fundargestir
Fyrir hönd foreldra: Sandra Haraldsdóttir
Fyrir hönd starfsfólks Reykjahlíðarskóla: Ólöf Þuríður Gunnarsdóttir
Huld Aðalbjarnardóttir, skólastjóri Reykjahlíðarskóla
Hannes Lárus Hjálmarsson, gestur

1.Gjaldskrár 2026

Málsnúmer 2505090Vakta málsnúmer

Fyrir nefndinni liggur gjaldskrá ÍMS fyrir árið 2026. Fara þarf yfir orðaval í henni þar sem koma fram afláttarkjör barna og unglinga sem ekki eiga við og geta valdið misskilningi.
Nefndin felur verkefnastjóra æskulýðs-, tómstunda- og menningarmála að koma með tillögu að uppfærðu skjali.

2.Janusarverkefni - heilsuefling eldri borgara

Málsnúmer 2510017Vakta málsnúmer

Fyrir nefndinni liggur að leggja sitt mat á um hvort innleiða eigi Janusarverkefnið - heilsuefling eldri borgara í Þingeyjarsveit.
Nefndin er afar hlynnt verkefninu og felur sviðsstjóra að taka saman minnisblað í samræmi við umræður á síðustu fundum. Nefndin vísar málinu til ákvarðanatöku í sveitarstjórn.

3.Grunnskólar Þingeyjarsveitar- rannsókn á samstarfi grunnskólanna

Málsnúmer 2512038Vakta málsnúmer

Hannes Lárus Hjálmarsson, meistaranemi í menntunarfræðum við Háskólann á Akureyri kynnir lokaverkefni sitt, rannsókn um samstarf grunnskóla sveitarfélagsins og nærumhverfis, fyrir nefndinni og svarar spurningum.
Nefndin þakkar Hannesi fyrir sérlega áhugaverða kynningu og óskar honum góðs gengis á lokasprettinum.

4.Sviðsstjóri fjölskyldusviðs - yfirferð

Málsnúmer 2602018Vakta málsnúmer

Sviðsstjóri fjölskyldusviðs fer yfir helstu verkefni mánaðarins.
Nefndin þakkar Hjördísi fyrir yfirferðina.

5.Þingeyjarskóli, Reykjahlíðarskóli, Stórutjarnaskóli - skólastarf 2025-2026

Málsnúmer 2510018Vakta málsnúmer

Skólastjóri Reykjahlíðarskóla fer yfir starf skólans frá áramótum.
Nefndin þakkar Huld fyrir greinargóða og skemmtilega yfirferð.

Fundi slitið - kl. 16:30.

Getum við bætt efni þessarar síðu?