Fara í efni

Skipulagsnefnd

37. fundur 18. júní 2025 kl. 09:00 - 12:00 í Þingey
Nefndarmenn
  • Knútur Emil Jónasson
  • Nanna Þórhallsdóttir
  • Haraldur Bóasson
  • Sigurður Guðni Böðvarsson
  • Jóna Björg Hlöðversdóttir var fjarverandi en í staðinn sat fundinn Hallgrímur Páll Leifsson
Starfsmenn
  • Rögnvaldur Harðarson
Fundargerð ritaði: Rögnvaldur Harðarson
Dagskrá

1.Aðaldalur, endurnýjun hitaveitustofns - umsókn um framkvæmdaleyfi

Málsnúmer 2506005Vakta málsnúmer

Orkuveita Húsavíkur sækir um framkvæmdaleyfi til endurnýjunar á hluta hitaveitustofns í Aðaldal, frá Laxá að Múla. Nýja hitaveitulögnin verður lögð samhliða eldri hitaveitulögn. Þar sem lögnin fer yfir Laxá

verður hún dregin í gegnum núverandi rörbrú neðan Laxárvirkjunar. Leyfi Náttúrufræðistofnunar liggur fyrir vegna framkvæmda innan verndarsvæðis Mývatns og Laxár.
Skipulagsnefnd samþykkir útgáfu framkvæmdarleyfis og felur skipulagsfulltrúa að gefa út leyfið út í samræmi við reglugerð um framkvæmdaleyfi nr. 772/2012 og 13. - 16. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 með fyrirvara um jákvæða umsögn Minjastofnunar.
Sigurður ber upp vanhæfi við þennan lið og víkur af fundi kl 09:06

2.Gautlönd 1- umsókn um byggingarleyfi fyrir kálfahúsi

Málsnúmer 2505098Vakta málsnúmer

Sótt er um byggingarleyfi fyrir viðbyggingu að stærð 189,2 m2 við norðurhlið fjóssins á Gautlöndum 1C. Ekkert deiliskipulag er til fyrir svæðið og er það á landbúnaðarlandi skv. aðalskipulagi.
Skipulagsnefnd samþykkir að grenndarkynna áformin hagsmunaaðilum samkvæmt 2. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Einnig skal óskað eftir umsögn Minjastofnunar Íslands. Byggingafulltrúa er falið að gefa út byggingaleyfi ef engar athugasemdir berast við grenndarkynningu, að fenginni jákvæðri umsögn umsagnaraðila og þegar fullnægjandi gögn hafa borist.

Sigurður kemur inn á fundinn aftur 09:17

3.Vaglir, fræhús - umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2506040Vakta málsnúmer

Sótt er um byggingarleyfi fyrir hús að stærð [m2] í landi Vagla í Fnjóskadal. Í aðalskipulagi er svæðið skilgreint sem opið svæði til sérstakra nota en ekkert deiliskipulag er til.
Skipulagsnefnd felur skipulagsfulltrúa að kalla eftir frekari gögnum varðandi form og staðsetningu. Nefndin samþykkir að grenndarkynna áformin landeigendum samkvæmt 2 mgr. 44. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010. þegar gögn hafa borist. Einnig skal óska eftir umsögn Minjastofnunar.

4.Nípá, vélaskemma - umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2506039Vakta málsnúmer

Sótt er um graftrarleyfi fyrir vélaskemmu að stærð 490-625 m2 á Nípá í Útkinn. Ekkert deiliskipulag er til fyrir svæðið og er það á landbúnaðarlandi skv. aðalskipulagi.
Nefndin getur ekki samþykkt graftrarleyfi á framkvæmd sem ekki hefur verið kynnt, en miðað við framlögð gögn, að fenginni byggingarleyfisumsókn, samþykkir nefndin að heimila byggingarfulltrúa að grenndarkynna byggingaráformin hagsmunaaðilum samkvæmt 2. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Óskað er eftir umsögn Minjastofnunar og Vegagerðarinnar.

5.Lautarvegur 12 og 14 - umsókn um lóð

Málsnúmer 2406031Vakta málsnúmer

Trésmiðjan Sólbakki ehf. sækir um lóðir við Lautarveg 12 og 14 á Laugum. Skipulagsnefnd tók málið fyrir 19. júní 2024 og frestaði málinu þar sem orðalag í auglýsingu um úthlutun lóða var ábótavant. Reglur um úthlutun lóða í Þingeyjarsveit voru samþykktar á 52. fundi sveitarstjórnar þann 28. nóvember 2024.

Umsóknin er því tekin aftur til umfjöllunar.
Í ljósi þess að málið hefur tafist er byggingarfulltrúa falið að hafa samband við umsækjendur og fá staðfestingu byggingaráforma. I framhaldi af því verða umsóknir afgreiddar samkvæmt reglum um úthlutun lóða í Þingeyjarsveit.

6.Lautarvegur 14 Umsókn um lóð

Málsnúmer 2407015Vakta málsnúmer

Ólafur Sólimann sækir um lóðir við Lautarveg 14 á Laugum. Reglur um úthlutun lóða í Þingeyjarsveit voru samþykktar á 52. fundi sveitarstjórnar þann 28. nóvember 2024.
Í ljósi þess að málið hefur tafist er byggingarfulltrúa falið að hafa samband við umsækjendur og fá staðfestingu byggingaráforma. I framhaldi af því verða umsóknir afgreiddar samkvæmt reglum um úthlutun lóða í Þingeyjarsveit.

7.Brún 3 - merkjalýsing

Málsnúmer 2506037Vakta málsnúmer

Tekin fyrir umsókn frá Hákoni Jenssyni merkjalýsanda f.h. landeiganda Brúnar um stofnun lóðar undir núverandi einbýlishús og bílageymslu úr jörðinni Brún. Svæðið er á landbúnaðarsvæði í aðalskipulagi og ekki er til deiliskipulag.
Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að stofnun lóðarinnar Brún 3 verði samþykkt.

8.Þinghúsið Maríugerði - umsókn um breytta skráningu úr sumarhúsi í íbúð

Málsnúmer 2503012Vakta málsnúmer

Sótt er um að breyta skráningu Þinghússins Maríugerðis í Kinn úr sumarhúsi í íbúðarhús og breyta lóðinni úr sumarhúsalóð í íbúðarhúsalóð. Skráning hússins fyrir árið 2004 var íbúð. Skipulagsnefnd tók jákvætt í erindið á fundi 19. mars sl. en óskaði eftir að gerð verði grein fyrir heimreið og aðkomu þjónustuaðila sem send verður til Vegagerðarinnar til umsagnar.
Skipulagsnefnd samþykkir breytta skráningu Þinghússins Maríugerðis í Kinn og felur byggingafulltrúa að ljúka málinu.
Skipulagsnefnd ítrekar fyrri afgreiðslu um nauðsyn þess að heimreiðin geti borið nauðsynlega umferð þjónustuaðila.

9.Laugaból 2 - umsókn um breytingu í íbúðarhúsalóð

Málsnúmer 2506002Vakta málsnúmer

Sótt er um að breyta skráningu Laugabóls 2 í Reykjadal úr sumarhúsi í íbúðarhús og breyta lóðinni úr sumarhúsalóð í íbúðarhúsalóð.
Skipulagsnefnd tekur jákvætt í breytingar á skráningu Laugabóls 2 og felur byggingafulltrúa að grenndarkynna áformin og ljúka málinu ef engar athugasemdir berast.

10.Láfsgerði - umsókn um breytingu í íbúðarhúsalóð

Málsnúmer 2506001Vakta málsnúmer

Sótt er um að breyta skráningu Láfsgerðis í Reykjadal úr sumarhúsi í íbúðarhús og breyta lóðinni úr sumarhúsalóð í íbúðarhúsalóð.
Skipulagsnefnd tekur jákvætt í breytingar á skráningu Láfsgerði og felur byggingafulltrúa að grenndarkynna áformin og ljúka málinu ef engar athugasemdir berast.
Hallgrímur vakti athygli á mögulegu vanhæfi. Nefndin samþykkir vanhæfi Hallgríms og yfirgaf fundinn 11:21

11.Vogar 1 - stjórnsýsluákæra vegna ákvörðunar um breytingu á deiliskipulagi

Málsnúmer 2506008Vakta málsnúmer

Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hefur borist kæra vegna ákvörðunar um breytingu á deiliskipulagi Voga 1 í Mývatnssveit, breytingu frístundalóða í íbúðalóðir. Gögn vegna málsins hafa verið afhent.
Lagt fram til kynningar.
Hallgrímur kemur inn 11:27

12.Skógahlíð 4 - umsókn um byggingarleyfi fyrir einbýlishús

Málsnúmer 2502049Vakta málsnúmer

Deiliskipulagsbreyting Skóga - frístundabyggð, þar sem stækkun byggingarreits Skógarhlíðar 4 stækkar til austurs var grenndarkynnt í samræmi við 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, frá 16. apríl með athugasemdarfresti til 14. maí 2025. Engar athugasemdir bárust.
Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að skipulagsbreytingin verði samþykkt í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

13.Hverir austan Námafjalls - breyting á skipulagi

Málsnúmer 2506027Vakta málsnúmer

Tekin fyrir deiliskipulagsbreyting á Hverum austan Námafjalls. Í tillögunni er lóð fyrir þjónustuhús færð um 70 m til norðausturs. Breytingin er gerð til að draga úr áhrifum þess á ásýnd hverasvæðisins.
Skipulagsnefnd samþykkir að grenndarkynna áformin hagsmunaaðilum samkvæmt 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og óska eftir umsögnum Náttúrufræðistofnunar og Náttúruverndarstofnunar.
Nefndin leggur til við sveitarstjórn að samþykkja breytinguna að fengnum jákvæðum umsögnum skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga.

14.Deiliskipulagsvinna fyrir Laxárstöðvar

Málsnúmer 2308020Vakta málsnúmer

Lögð er fram tillaga að deiliskipulagi Laxárstöðvar sem nær til virkjanasvæðis í Laxá í Aðaldal.

Skipulagslýsing var kynnt frá 28. nóvember til. 19. desember 2023.
Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að tillagan verði auglýst í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulagsnefnd bendir á að í lista yfir mannvirki er skráð mannvirki sem er ekki innan deiliskipulagsmarka.

15.Endurskoðun Aðalskipulags Svalbarðsstrandahrepps 2025-2037 - beiðni - umsögn

Málsnúmer 2402068Vakta málsnúmer

Tekin fyrir beiðni frá Svalbarðsstrandahreppi um umsögn um vinnslutillögu nýs aðalskipulags sveitarfélagsins, Aðalskipulag Svalbarðsstrandahrepps 2025-2037.
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemdir að svo stöddu. Máli vísað í sveitarstjórn.
Skipulagsnefnd felur skipulagsráðgjafa að yfirfara framlögð sveitarfélagamörk.

16.Eyjafjarðarsveit - ósk um umsögn er varðar aðalskipulag Eyjafjarðarsveitar, endurskoðun 2025-2037

Málsnúmer 2506004Vakta málsnúmer

Tekin fyrir beiðni frá Eyjafjarðarsveit um umsögn um skipulagslýsingu fyrir endurskoðun aðalskipulags sveitarfélagsins, aðalskipulag Eyjafjarðarsveitar 2025-2037.
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemdir að svo stöddu. Vísað til sveitarstjórnar.

17.Sveitarfélagið Hornafjörður, endurskðun aðalskipulags - umsagnarbeiðni

Málsnúmer 2506030Vakta málsnúmer

Sveitarfélagið Hornafjörður óskar eftir umsögn Þingeyjarsveitar á vinnslutillögu að endurskoðuðu aðalskipulagi.
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemdir að svo stöddu. Máli vísað í sveitarstjórn.
Skipulagsnefnd felur skipulagsráðgjafa að yfirfara framlögð sveitarfélagamörk.

18.Gjaldskrár 2026

Málsnúmer 2505090Vakta málsnúmer

Farið yfir þær gjaldskrár sem undir nefndina heyra til undirbúnings fjárhagsáætlunar næsta árs.
Umræður um gjaldskrár. Verður framhaldið á næsta fundi.

19.Kvíhólsmýri - deiliskipulag - beiðni um breytingu á skipulagi

Málsnúmer 2504059Vakta málsnúmer

Umsókn um byggingarleyfi til að byggja við Kvíhólsmýri 1a til norðurs um 5 m var grenndarkynnt frá 19. maí með athugasemdarfresti til 16. júní 2025. Umsögn barst frá Minjastofnun Íslands en engar athugasemdir bárust.
Skipulagsnefnd samþykkir erindið og felur byggingafulltrúa að gefa út byggingaleyfi þegar tilskilin gögn hafa borist.

Fundi slitið - kl. 12:00.

Getum við bætt efni þessarar síðu?