Fara í efni

Aðaldalur, endurnýjun hitaveitustofns - umsókn um framkvæmdaleyfi

Málsnúmer 2506005

Vakta málsnúmer

Skipulagsnefnd - 37. fundur - 18.06.2025

Orkuveita Húsavíkur sækir um framkvæmdaleyfi til endurnýjunar á hluta hitaveitustofns í Aðaldal, frá Laxá að Múla. Nýja hitaveitulögnin verður lögð samhliða eldri hitaveitulögn. Þar sem lögnin fer yfir Laxá

verður hún dregin í gegnum núverandi rörbrú neðan Laxárvirkjunar. Leyfi Náttúrufræðistofnunar liggur fyrir vegna framkvæmda innan verndarsvæðis Mývatns og Laxár.
Skipulagsnefnd samþykkir útgáfu framkvæmdarleyfis og felur skipulagsfulltrúa að gefa út leyfið út í samræmi við reglugerð um framkvæmdaleyfi nr. 772/2012 og 13. - 16. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 með fyrirvara um jákvæða umsögn Minjastofnunar.
Getum við bætt efni þessarar síðu?