Fara í efni

Deiliskipulagsvinna fyrir Laxárstöðvar

Málsnúmer 2308020

Vakta málsnúmer

Skipulagsnefnd - 37. fundur - 18.06.2025

Lögð er fram tillaga að deiliskipulagi Laxárstöðvar sem nær til virkjanasvæðis í Laxá í Aðaldal.

Skipulagslýsing var kynnt frá 28. nóvember til. 19. desember 2023.
Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að tillagan verði auglýst í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulagsnefnd bendir á að í lista yfir mannvirki er skráð mannvirki sem er ekki innan deiliskipulagsmarka.

Sveitarstjórn Þingeyjarsveitar - 61. fundur - 26.06.2025

Á 37. fundi skipulagsnefndar var eftirfarandi bókað undir dagskrárlið nr. 14 er varðar tillögu að deiliskipulagi fyrir Laxárstöðvar sem nær til virkjanasvæðis í Laxá í Aðaldal:

"Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að tillagan verði auglýst í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Skipulagsnefnd bendir á að í lista yfir mannvirki er skráð mannvirki sem er ekki innan deiliskipulagsmarka."

Til máls tók: Knútur.

Sveitarstjórn barst ósk um frestun málsins, taldi sveitarstjórn ekki rök til að fresta afgreiðslu deiliskipulagsins til auglýsingar. Í auglýsingaferlinu gefst tækifæri á að koma athugasemdum á framfæri.

Sveitarstjórn samþykkir að tillaga að deiliskipulagi fyrir Laxárstöðvar sem nær til virkjanasvæðis Laxár í Aðaldal verði auglýst í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Sveitarstjórn felur skipulagsráðgjafa að vinna málið áfram.

Samþykkt samhljóða.
Getum við bætt efni þessarar síðu?