Gautlönd 1- umsókn um byggingarleyfi fyrir kálfahúsi
Málsnúmer 2505098
Vakta málsnúmerSkipulagsnefnd - 37. fundur - 18.06.2025
Sigurður ber upp vanhæfi við þennan lið og víkur af fundi kl 09:06
Sótt er um byggingarleyfi fyrir viðbyggingu að stærð 189,2 m2 við norðurhlið fjóssins á Gautlöndum 1C. Ekkert deiliskipulag er til fyrir svæðið og er það á landbúnaðarlandi skv. aðalskipulagi.
Skipulagsnefnd samþykkir að grenndarkynna áformin hagsmunaaðilum samkvæmt 2. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Einnig skal óskað eftir umsögn Minjastofnunar Íslands. Byggingafulltrúa er falið að gefa út byggingaleyfi ef engar athugasemdir berast við grenndarkynningu, að fenginni jákvæðri umsögn umsagnaraðila og þegar fullnægjandi gögn hafa borist.
Sigurður kemur inn á fundinn aftur 09:17