Fara í efni

Lautarvegur 12 og 14 - umsókn um lóð

Málsnúmer 2406031

Vakta málsnúmer

Skipulagsnefnd - 37. fundur - 18.06.2025

Trésmiðjan Sólbakki ehf. sækir um lóðir við Lautarveg 12 og 14 á Laugum. Skipulagsnefnd tók málið fyrir 19. júní 2024 og frestaði málinu þar sem orðalag í auglýsingu um úthlutun lóða var ábótavant. Reglur um úthlutun lóða í Þingeyjarsveit voru samþykktar á 52. fundi sveitarstjórnar þann 28. nóvember 2024.

Umsóknin er því tekin aftur til umfjöllunar.
Í ljósi þess að málið hefur tafist er byggingarfulltrúa falið að hafa samband við umsækjendur og fá staðfestingu byggingaráforma. I framhaldi af því verða umsóknir afgreiddar samkvæmt reglum um úthlutun lóða í Þingeyjarsveit.
Getum við bætt efni þessarar síðu?