Fara í efni

Fræðslu- og velferðarnefnd Þingeyjarsveit

27. fundur 05. júní 2025 kl. 14:30 - 16:30 í Þingey
Nefndarmenn
  • Gunnhildur Hinriksdóttir
  • Anna Bragadóttir
  • Sigurbjörn Árni Arngrímsson
  • Ragnhildur Hólm Sigurðardóttir
  • Böðvar Baldursson var fjarverandi en í staðinn sat fundinn Lára Ingvarsdóttir
Starfsmenn
  • Ásta F. Flosadóttir
Fundargerð ritaði: Ásta F. Flosadóttir
Dagskrá
Áheyrnarfulltrúar:
Nanna Marteinsdóttir og Lilja Friðriksdóttir fyrir skólastjórnendur
Erna María Halldórsdóttir fyrir foreldra leikskóla
Þorgerður Sigurgeirsdóttir fyrir starfsfólk leikskóla
Kristjana Eysteinsdóttir fyrir kennara

1.HeimaHöfn - málþing um byggðafestu ungs fólks

Málsnúmer 2505063Vakta málsnúmer

Fyrir fræðslu- og velferðarnefnd liggur kynningarbréf um málþing á vegum Nýheims Þekkingarseturs í tengslum við verkefnið HeimaHöfn er varðar byggðafestu ungs fólks.
Fræðslu- og velferðarnefnd þakkar kynninguna á málþinginu um verkefnið HeimaHöfn og hvetur eindregið til þátttöku í málþinginu.

2.Gjaldskrár 2026

Málsnúmer 2505090Vakta málsnúmer

Farið yfir þær gjaldskrár sem undir nefndina heyra til undirbúnings fjárhagsáætlunar næsta árs.
Farið yfir gjaldskrár.
Frá stjórnendum leikskóla hefur borist sú ósk um breytingu á gjaldskrá leikskóla að stjórnendur fái heimild til að innheimta sk. ,,bleyjugjald“ eða gefa foreldrum kost á að skrá sig í bleyjuáskrift.
Markmiðið er að minnka álag á starfsmenn og bæta skilvirkni í starfinu vegna utanumhalds og samskipta tengd móttöku bleyja frá foreldrum. Stjórnendur telja að bætt þjónusta fyrir foreldra verði vel þegin þar sem slík þjónusta kæmi til með að minnka einnig álag á þá.
Nefndin tekur vel í hugmyndina og felur sviðsstjóra fjölskyldusviðs að útfæra tillögur að fyrirkomulagi í samráði við leikskólastjóra Þingeyjarsveitar.

Umræðu um gjaldskrár frestað til næsta fundar.
Gunnhildur Hinriksdóttir vakti athygli á mögulegu vanhæfi sínu. Greidd atkvæði um vanhæfi og það samþykkt. Gunnhildur vék af fundi undir þessum lið.

3.Kennarafélag Framhaldsskólans á Laugum - ályktun vegna fyrirhugaðrar lokunar á leikskóladeild Krílabæjar

Málsnúmer 2505102Vakta málsnúmer

Fyrir fræðslu- og velferðarnefnd liggur ályktun frá Kennarafélagi Framhaldskólans á Laugum, móttekin 30.05.2025, vegna fyrirhugaðrar lokunar á leikskóladeild Krílabæjar.
Fræðslu- og velferðarnefnd tekur undir áhyggjur kennarafélags Framhaldsskólans og beinir því til sveitarstjórnar að taka tillit til þessarar ályktunar við ákvörðun um framtíð leikskóladeildarinnar í Krílabæ.
Gunnhildur Hinriksdóttir kom aftur til fundar að umfjöllun lokinni.

4.Krílabær - bréf foreldra varðandi fyrirhugaða lokun leikskólans

Málsnúmer 2506006Vakta málsnúmer

Fyrir fræðslu- og velferðarnefnd liggur erindi frá foreldrum barna í Krílabæ vegna fyrirhugaðrar lokunar á leikskólanum.
Fræðslu- og velferðarnefnd tekur undir áhyggjur foreldra og beinir því til sveitarstjórnar að taka tillit til þessa erindis við ákvörðun um framtíð leikskóladeildarinnar í Krílabæ.

5.Skóladagatal leikskóla 2025-2026 - Barnaborg og Krílabær, Tjarnarskjól og Ylur

Málsnúmer 2506009Vakta málsnúmer

Lögð eru fram fyrir fræðslu- og velferðarnefnd skóladagatöl leikskóladeilda Þingeyjarsveitar fyrir skólaárið 2025-2026.
Nefndin þakkar leikskólastjórum fyrir framlögð dagatöl.

6.Barnavernd - verklagsreglur um viðbrögð þegar grunur vaknar um ofbeldi eða vanrækslu gegn börnum

Málsnúmer 2506011Vakta málsnúmer

Lögð eru nefndina drög að verklagsreglum vegna gruns um ofbeldi eða vanrækslu gegn börnum.
Fræðslu- og velferðarnefnd samþykkir drögin fyrir sitt leyti og vísar þeim til sveitarstjórnar til staðfestingar.

7.Reykjahlíðarskóli - umsókn um starf skólastjóra

Málsnúmer 2505095Vakta málsnúmer

Fræðslu- og velferðarnefnd veitir umsögn til sveitarstjórnar varðandi ráðningu skólastjóra Reykjahlíðarskóla.
Nefndin fór yfir öll gögn málsins og mælir með því Huld Aðalbjarnardóttir verði ráðin í starf skólastjóra Reykjahlíðarskóla. Huld er grunnskólakennari að mennt og hefur víðtæka reynslu af stjórnun, rekstri og mannauðsmálum. Hún var skólastjóri Öxarfjarðarskóla frá 2000-2008, fræðslu- og menningarfulltrúi Norðurþings 2008-2013 og skrifstofustjóri Framsýnar stéttarfélags 2013-2020.

8.Þingeyjarskóli - skólastarf

Málsnúmer 2410005Vakta málsnúmer

Lilja Friðriksdóttir skólastjóri Þingeyjarskóla gerir grein fyrir starfinu í vetur.
Lilja fór yfir starfið nú á vordögum. Útlit er fyrir fækkun barna í Þingeyjarskóla næsta haust og verða þau rúmlega 60 í grunnskóladeildinni, þar sem mjög stór árgangur er að ljúka námi í 10. bekk.
Á skólaslitum var kynnt nýtt merki Þingeyjarskóla, byggt á listaverki eftir Gerði Fold nemanda Barnaborgar, en hún hefði útskrifast úr leikskóla núna í vor. Fræðslu- og velferðarnefnd óskar Þingeyjarskóla til hamingju með nýtt merki.
Nefndin þakkar Lilju Friðriksdóttur samstarfið og óskar henni velfarnaðar á nýjum vettvangi.

Fundi slitið - kl. 16:30.

Getum við bætt efni þessarar síðu?