Stóruvellir ehf. - fyrirtæki í sveitarfélaginu til sölu
Málsnúmer 2608063
Vakta málsnúmerAtvinnu- og nýsköpunarnefnd Þingeyjarsveit - 29. fundur - 25.08.2026
Fyrirtækið Stóruvellir ehf. sem hefur verið starfrækt í Þingeyjarsveit sl. 33 ár hefur verið auglýst til sölu. Fyrirtækið framleiðir hamsatólg, tólg til steikingar og útikerti. Fyrirtækið er með sterka markaðshlutdeild og er þekkt vörumerki. Um er að ræða 2-3 heilsársstörf, með mikla möguleika og sveigjanlegan vinnutíma.
Atvinnu- og nýsköpunarnefnd telur mikilvægt að rekstur Stóruvalla ehf. haldist innan sveitarfélagsins og hvetur íbúa Þingeyjarsveitar, sem hafa áhuga á að setja upp rekstur eða stækka sinn rekstur, að skoða þetta tækifæri.