Fara í efni

Úrvinnslusjóður - greiðslur til sveitarfélaga vegna hreinsunar plastvara á víðavangi 2025 og 2026

Málsnúmer 2609064

Vakta málsnúmer

Umhverfisnefnd - 37. fundur - 15.10.2026

Fyrir umhverfisnefnd liggur erindi frá Úrvinnslusjóði er varðar greiðslur til sveitarfélaga vegna hreinsunar plastvara á víðavangi 2025 og 2026.
Innan Þingeyjarsveitar hafa víða verið skipulögð hreinsunarátök auk einstaklingsframtaks við að tína rusl á víðavangi. Umhverfisnefnd óskar eftir því að sveitarfélagið útbúi leiðbeiningar til þeirra félagasamtaka og einstaklinga sem framkvæma þau hreinsunarátök svo hægt sé að sækja um fjárveitingar skv. reglum úrvinnslusjóðs. Umhverfisnefnd leggur til að þeim fjármunum verði svo varið til að styrkja hreinsun úrgangs á víðavangi.
Getum við bætt efni þessarar síðu?