Sveitarstjórn Þingeyjarsveitar
1.Fræðslu- og velferðarnefnd Þingeyjarsveit - 39
Málsnúmer 2611001FVakta málsnúmer
Fundargerðin er staðfest.
2.Fjárhagsáætlun 2026 - viðaukar
Málsnúmer 2601031Vakta málsnúmer
Sveitarstjórn samþykkir viðauka nr. 9 við fjárhagsáætlun 2026 að fjárhæð 2,7 m.kr. vegna kaupa á búnaði fyrir mötuneyti Þingeyjarskóla. Viðaukinn er fjármagnaður af handbæru fé og færist á fjárfestingar ársins.
Samþykkt samhljóða.
3.Þingeyjarsveit - samningar við ungmenna-, íþrótta- og æskulýðsfélög
Málsnúmer 2209058Vakta málsnúmer
Samþykkt samhljóða.
Hallgrímur og Dóra véku af fundi kl. 14.11.
Til máls tóku: Nanna, Knútur, Eyþór Kári og Knútur.
Knútur lagði til eftirfarandi bókun:
Sveitarstjórn samþykkir fyrirliggjandi samstarfssamninga við íþrótta-, ungmenna- og æskulýðsfélög í sveitarfélaginu fyrir samningstímabilið 2027-2028 að viðbættri þeirri breytingu að ákvæði um afnotarétt af skólastofum verði fellt úr öllum samningum og felur sveitarstjóra að undirrita samningana fyrir hönd sveitarfélagsins.
Sveitarstjórn þakkar félögunum mikilvægt framlag þeirra til íþrótta-, tómstunda- og æskulýðsstarfs í sveitarfélaginu.
Samþykkt samhljóða.
Dóra Rún og Hallgrímur Páll komu aftur inn á fund kl. 14.17.
4.Veitur Þingeyjarsveitar - markmiðaskjal sveitarstjórnar
Málsnúmer 2611018Vakta málsnúmer
Sveitarstjórn ræddi fyrirliggjandi drög að markmiðaskjali fyrir veitur sveitarfélagsins. Sveitarstjórn felur sveitarstjóra að vinna áfram að málinu í samræmi við framkomnar ábendingar og leggja endanleg drög fyrir sveitarstjórn til umræðu og afgreiðslu.
Samþykkt samhljóða.
5.Sveitarstjórn Þingeyjarsveitar - breyting á dagsetningu fundar í desember
Málsnúmer 2611021Vakta málsnúmer
Sveitarstjórn samþykkir að breyta áður samþykktri fundaáætlun þannig að sveitarstjórnarfundur, sem fyrirhugaður var 3. desember 2026, verði haldinn 10. desember 2026. Breytingin er gerð þar sem fyrri umræða um fjárhagsáætlun ársins 2027 fer fram 26. nóvember og nauðsynlegt er að tilskilinn tími líði fram að síðari umræðu. Jafnframt samþykkir sveitarstjórn að fella niður fund sem fyrirhugaður var 17. desember 2026.
Samþykkt samhljóða.
6.Gjaldtaka í Vaðlaheiðargöngum
Málsnúmer 2611022Vakta málsnúmer
Sveitarstjórn hvetur stjórnvöld til að endurskoða fyrirkomulag gjaldtöku í Vaðlaheiðargöngum með það að markmiði að betur verði komið til móts við reglulega notendur gangnanna. Vaðlaheiðargöng hafa verulega þýðingu fyrir íbúa Þingeyjarsveitar, sérstaklega þá sem sækja daglega vinnu og aðra þjónustu um göngin, sem og þá aðila sem stunda vinnu í Þingeyjarsveit.
Sveitarstjóra falið að koma sjónarmiðum sveitarstjórnar á framfæri við stjórnvöld.
Samþykkt samhljóða.
7.Greiðslufyrirkomulag Loftbrúar
Málsnúmer 2611023Vakta málsnúmer
Sveitarstjórn Þingeyjarsveitar mótmælir harðlega fyrirhuguðum breytingum á fyrirkomulagi Loftbrúar.
Loftbrú gegnir mikilvægu hlutverki við að jafna aðgengi íbúa landsbyggðarinnar að nauðsynlegri þjónustu sem ekki er í boði í heimabyggð. Sveitarstjórn telur að fyrirhuguð föst krónutala geti skert stuðning við þá sem þurfa að ferðast með skömmum fyrirvara og þannig dregið úr jöfnunarhlutverki Loftbrúar.
Sveitarstjórn skorar á ráðherra að falla frá áformunum eða, áður en ákvörðun um breytingar er tekin, hafa víðtækt samráð við sveitarfélög og aðra hagsmunaaðila á landsbyggðinni.
Samþykkt samhljóða.
8.Landeigendur Reykjahlíðar - tillögur verkefnisstjórnar rammaáætlunar
Málsnúmer 2610056Vakta málsnúmer
Óskað er eftir því að sveitarstjórn leggist gegn fyrirhugaðri friðlýsingu og virði þar með ákvörðunarvald landeigenda Reykjahlíðar og rétt þeirra til að ráða yfir sínu eigin landi og að hugmyndir annarra um nýtingu eða ráðstöfun jarðarinnar Reykjahlíðar verði ekki gerð í andstöðu við vilja landeigenda. Málið varðar tillögu verkefnisstjórnar rammaáætlunar um virkjanahugmyndir í verndarflokk og átta verndarsvæði, mál nr. S-162/2026 í samráðsgátt stjórnvalda. Friðlýsing Vatnasviðs Jökulsár á Fjöllum og verndarsvæðis Gjástykkis var afturkölluð í kjölfar niðurstöðu dóms Hæstaréttar í máli 36/2023. Í kjölfar dómsins var umræddum virkjanakostum vísað aftur til verkefnisstjórnar rammaáætlunar sem leggur síðan fram þessa tillögu.
Eyþór Kári leggur til eftirfarandi bókun:
Sveitarstjórn samþykkir að send verði umsögn sem tekur undir sjónarmið í fyrirliggjandi bréfi frá Landeigendum Reykjahlíðar ehf.
Samþykkt með atkvæðum Hallgríms Páls, Eyþórs Kára og Freydísar Önnu. Atkvæði á móti greiddu Knútur, Nanna, Anna og Dóra Rún.
Sveitarstjórn tekur undir mikilvægi þess að sjónarmið landeigenda komi skýrt fram við frekari umfjöllun um málið og leggur áherslu á vandað samráð við alla hagsmunaaðila. Málið er í samráðsgátt stjórnvalda með athugasemdafrest til 4.desember n.k.
Sveitarstjórn leggst ekki gegn tillögu verkefnisstjórnar rammaáætlunar fyrir sitt leyti.
Samþykkt með atkvæðum Knúts, Nönnu, Önnu og Dóru Rúnar. Atkvæði á móti greiddu Hallgrímur Páll, Eyþór Kári og Freydís Anna.
9.Golfklúbbur Mývatnssveitar - fyrirspurn varðandi lagningu heitavatnslagnar að golfskála klúbbsins
Málsnúmer 2609012Vakta málsnúmer
Sveitarstjórn þakkar Golfklúbbi Mývatnssveitar fyrir erindið. Sveitarstjórn mun ekki standa undir kostnaði við framkvæmd heitavatnslagnar að svo stöddu.
Samþykkt með sex atkvæðum, Hallgrímur Páll situr hjá.
10.Kvenfélag Reykdæla - Vika einmanaleikans - umsókn um niðurfellingu húsaleigu
Málsnúmer 2611010Vakta málsnúmer
Sveitarstjórn tekur jákvætt í erindið. Þar sem ekki eru forsendur til niðurfellingar húsaleigu fasteignarinnar samþykkir sveitarstjórn að veita Kvenfélagi Reykdæla styrk sem nemur fjárhæð húsaleigunnar vegna viðburðar í tengslum við Viku einmanaleikans.
Samþykkt samhljóða.
11.Veiðifélag Reykjadals og Eyvindarlækjar - bókun aðalfundar varðandi mengun frá þéttbýli Lauga og áhrif á vatnsgæði Reykjadalsár
Málsnúmer 2611011Vakta málsnúmer
Sveitarstjórn þakkar erindið og tekur undir mikilvægi þess að tryggja vatnsgæði í Reykjadalsá.
Sveitarstjórn vill beina því til Náttúruverndarstofnunar að Reykjadalsá er hluti af vatnakerfi Laxár í Aðaldal og því sé rétt að horfa til hennar við endurskoðun verndaráætlunar fyrir Mývatn og Laxá, og hún verði innifalin í ítarlegri vöktun vatnshlotsins.
Samþykkt samhljóða.
12.SUNN - bréf til sveitarstjórnar vegna Norðurvegs í Kinn
Málsnúmer 2611017Vakta málsnúmer
Freydís Anna lýsti yfir mögulegu vanhæfi sínu. Sveitarstjórn hafnar vanhæfi Freydísar Önnu.
Samþjöppun heilbrigðisþjónustu og löggæslu á Akureyri er meðal þess sem kallar á greiðar og öruggar vegasamgöngur fyrir almenning. Sveitarstjórn álítur að það séu brýnir almannahagsmunir landshlutans að íbúar komist greitt og örugglega undir læknishendur og að viðbragðstími löggæslu, sjúkrabíla, slökkviliðs og hjálparsveita sé sem stystur.
Samþykkt samhljóða.
13.Samtök Landbúnaðarsveitarfélaga - stofnfundur
Málsnúmer 2609087Vakta málsnúmer
Lagt fram til kynningar fundargerð stofnfundar ásamt samþykktum samtakanna.
14.Innviðaráðuneytið - mál S 191 2026 Viðmið um sjálfbæra þróun sveitarfélaga
Málsnúmer 2610037Vakta málsnúmer
Settar eru fram tillögur að 30 mælikvörðum og skilgreindum viðmiðum sem gefa til kynna hvort sveitarfélög hafi nauðsynlegar forsendur til að þróast með sjálfbærum hætti til lengri tíma.
Umsagnarfrestur er til 13. nóvember 2026, málinu var frestað á síðasta fundi sveitarstjórnar 22. október.
Sveitarstjórn samþykkir að fela sveitarstjóra að forma bókun í samræmi við umræður á fundi og senda inn í samráðsgátt.
Samþykkt samhljóða.
15.Norðurorka - hluthafafundur 2026
Málsnúmer 2611001Vakta málsnúmer
Sveitarstjórn samþykkir að sveitarstjóri fari með umboð sveitarfélagsins á hluthafafundi Norðurorku þann 30. nóvember nk.
Samþykkt samhljóða.
16.Leikskólar Þingeyjarsveitar - starfsmannavelta og mannekla
Málsnúmer 2610023Vakta málsnúmer
"Nefndin telur nauðsynlegt að brugðist verði við alvarlegu ástandi í leikskólum sveitarfélagsins vegna langvarandi manneklu og vísar málinu til sveitarstjórnar. Nefndin vill leggja áherslu á það að verið er að horfa til tveggja þátta. Annars vegar að draga úr álagi og hins vegar að auka starfsánægju starfsfólks og gera þar með vinnustaðinn eftirsóknarverðari. Tillögur nefndar: - Val um 30 tíma gjaldfrjálsa vistun á viku. - Fjölga starfsdögum úr 6 í 10 daga á ári og þar með auka undirbúning starfsfólks. Leikskólastjórnendur útfæra starfsdaga á skóladagatali. - Leita leiða til að styðja starfsfólk enn frekar til náms samhliða starfi. - Íhuga þætti sem geta aukið starfsánægju, s.s. skólastjórnendum veitt aukið svigrúm til viðburða fyrir starfsfólk, afsláttarkort í afþreyingu í sveitarfélaginu (s.s. veitingastaði, baðstaði o.fl.), sértækur fatastyrkur til leikskólastarfsfólks vegna vinnuaðstæðna."
Sveitarstjórn samþykkir vanhæfi þeirra samhljóða.
Nanna og Dóra Rún víkja af fundi kl. 15.41.
Til máls tóku: Anna, Hallgrímur Páll og Knútur.
Sveitarstjórn felur sveitarstjóra í samráði við sviðsstjóra fjölskyldusviðs að útfæra frekar tillögur fræðslu og velferðarnefndar með það að markmiði að minnka álag m.a. með breytingum á vistunartíma og aðstæðum á vinnustað og bera undir forráðamenn stofnana. Að því loknu komi málið aftur til umræðu og afgreiðslu sveitarstjórnar.
Samþykkt samhljóða.
Nanna og Dóra Rún koma aftur til fundar kl. 15.47.
Samþykkt samhljóða.
17.Úrsögn fulltrúa úr fræðslu- og velferðarnefnd
Málsnúmer 2611014Vakta málsnúmer
"Nefndin þakkar Jónu Ósk fyrir samstarfið og leggur til við sveitarstjórn að 1. varamaður Á-lista, Ingibjörg Lukka Stefánsdóttir komi inn í fræðslu- og velferðarnefnd sem aðalmaður."
Sveitarstjórn þakkar Jónu Ósk Antonsdóttur fyrir störf í þágu sveitarfélagsins og samþykkir að tilnefna Ingibjörgu Lukku Stefánsdóttur Á-lista sem aðalmann í fræðslu- og velferðarnefnd.
Samþykkt samhljóða.
18.Úrvinnslusjóður - greiðslur til sveitarfélaga vegna hreinsunar plastvara á víðavangi 2025 og 2026
Málsnúmer 2609064Vakta málsnúmer
Málinu var frestað á fundi sveitarstjórnar 22. október sl.
Sveitarstjórn tekur undir bókun umhverfisnefndar og vísar málinu til umhverfis- og framkvæmdasviðs. Sviðinu er falið að útbúa leiðbeiningar fyrir félagasamtök og einstaklinga vegna skipulagðra hreinsunarátaka og söfnunar úrgangs á víðavangi, m.a. með hliðsjón af möguleikum á umsókn um styrki samkvæmt reglum Úrvinnslusjóðs. Leiðbeiningarnar verði lagðar fyrir sveitarstjórn til afgreiðslu.
Einnig leggur sveitarstjórn til að því verði komið á framfæri við Úrvinnslusjóð að taka einnig tillit til landsstærðar sveitarfélaga í úthlutunarreglum sjóðsins.
Samþykkt samhljóða.
19.Hjálparsveit skáta Reykjadal - umsókn um leyfi til flugeldasölu
Málsnúmer 2610069Vakta málsnúmer
Samþykkt samhljóða.
20.Björgunarsveitin Stefán - flugeldasýning og áramótabrenna - umsagnarbeiðni vegna tækifærisleyfis
Málsnúmer 2610068Vakta málsnúmer
Sveitarstjórn gerir ekki athugasemdir við umbeðið tækifærisleyfi Björgunarsveitarinnar Stefáns vegna flugeldasýningar og áramótabrennu 31.desember við Jarðbaðshóla í Mývatnssveit.
Samþykkt samhljóða.
21.Uppsalir, Bjarkarlundur 19 - gistiheimili - umsagnarbeiðni rekstrarleyfis
Málsnúmer 2610009Vakta málsnúmer
22.Kambur 641 Húsavík - umsagnarbeiðni vegna gistileyfis
Málsnúmer 2611002Vakta málsnúmer
23.Forsendur fjárhagsáætlana sveitarfélaga 2027-2031
Málsnúmer 2606035Vakta málsnúmer
Uppfærðar forsendur taka að mestu mið af þjóðhagsspá Seðlabanka Íslands frá því í ágúst. Á grunni þeirrar spár framlengir Fjármála- og efnahagsráðuneytið spátímabilið og spáir fyrir um þróun útsvarsstofns sveitarfélaga. Í spá ráðuneytisins er útsvarsstofninn tekinn eilítið niður frá fyrra mati aðallega vegna minni vaxtar á yfirstandandi ári. Vöxtur útsvars á næsta ári er óbreyttur og lítið breyttur það sem eftir er spátímabilsins. Þá telur Seðlabanki Íslands að flest bendi til þess að verðbólga hjaðni hratt á næsta ári en það veltur auðvitað áfram á þróun alþjóðlegra efnahagsmála.
Lagt fram til kynningar.
24.Verum viðbúin - upplýsingar til sveitarfélaga
Málsnúmer 2611009Vakta málsnúmer
Sveitarstjórn hvetur íbúa til að kynna sér efni bæklingsins vel.
Samþykkt samhljóða.
Lagt fram til kynningar.
25.Klappahraun 6 Mývatnssveit - úthlutun stofnframlaga ríkisins
Málsnúmer 2610070Vakta málsnúmer
26.Framhaldsskólinn á Laugum - Tónkvíslin - umsagnarbeiðni vegna tækifærisleyfis
Málsnúmer 2610059Vakta málsnúmer
27.Svæðisráð norðursvæðis - fundargerðir 2026-2030
Málsnúmer 2608076Vakta málsnúmer
28.Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi eystra - fundargerðir 2026-2030
Málsnúmer 2608068Vakta málsnúmer
Lagt fram til kynningar.
29.Stjórn Norðurorku - fundargerðir 2026-2030
Málsnúmer 2608081Vakta málsnúmer
30.Norðurorka - aukaaðalfundur 2026
Málsnúmer 2610016Vakta málsnúmer
31.Samtök sveitarfélaga á köldum svæðum - fundargerðir
Málsnúmer 2501052Vakta málsnúmer
32.Heilbrigðisnefnd Norðurlands eystra - fundargerðir 2026-2030
Málsnúmer 2608079Vakta málsnúmer
Lagt fram til kynningar.
33.Samband íslenskra sveitarfélaga - fundargerðir 2026-2030
Málsnúmer 2608080Vakta málsnúmer
Reglulega skýrslu sveitarstjóra á sveitarstjórnarfundum.
Framtíðarform sveitarstjórnarfunda.
Til máls tóku: Eyþór Kári og Knútur.
Fundi slitið.