Fara í efni

Forsendur fjárhagsáætlana sveitarfélaga 2027-2031

Málsnúmer 2606035

Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn Þingeyjarsveitar - 82. fundur - 25.06.2026

Fyrir sveitarstjórn liggur til kynningar minnisblað frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga um forsendur fjárhagsáætlana sveitarfélaga fyrir árin 2027-2031.

Í minnisblaðinu er spátímabilið fimm ár því samkvæmt nýjum sveitarstjórnarlögum sem liggja fyrir þinginu er lagt til að áætlanagerð sveitarfélaga nái til fimm ár þó er minnt á að frumvarpið hefur þó ekki verið afgreitt.
Lagt fram til kynningar.

Sveitarstjórn Þingeyjarsveitar - 89. fundur - 12.11.2026

Fyrir sveitarstjórn liggur til kynningar uppfært minnisblað hagfræðings Sambands íslenskra sveitarfélaga er varðar forsendur fjárhagsáætlana sveitarfélaga 2027-2031.

Uppfærðar forsendur taka að mestu mið af þjóðhagsspá Seðlabanka Íslands frá því í ágúst. Á grunni þeirrar spár framlengir Fjármála- og efnahagsráðuneytið spátímabilið og spáir fyrir um þróun útsvarsstofns sveitarfélaga. Í spá ráðuneytisins er útsvarsstofninn tekinn eilítið niður frá fyrra mati aðallega vegna minni vaxtar á yfirstandandi ári. Vöxtur útsvars á næsta ári er óbreyttur og lítið breyttur það sem eftir er spátímabilsins. Þá telur Seðlabanki Íslands að flest bendi til þess að verðbólga hjaðni hratt á næsta ári en það veltur auðvitað áfram á þróun alþjóðlegra efnahagsmála.
Til máls tók: Hallgrímur.

Lagt fram til kynningar.
Getum við bætt efni þessarar síðu?