Greiðslufyrirkomulag Loftbrúar
Málsnúmer 2611023
Vakta málsnúmerSveitarstjórn Þingeyjarsveitar - 89. fundur - 12.11.2026
Fyrir sveitarstjórn liggja til umræðu áform innviðaráðuneytis nýtt fyrirkomulag afsláttarkóða Loftbrúar þar sem afsláttur á að verða föst krónutala í stað prósentu.
Sveitarstjórn Þingeyjarsveitar mótmælir harðlega fyrirhuguðum breytingum á fyrirkomulagi Loftbrúar.
Loftbrú gegnir mikilvægu hlutverki við að jafna aðgengi íbúa landsbyggðarinnar að nauðsynlegri þjónustu sem ekki er í boði í heimabyggð. Sveitarstjórn telur að fyrirhuguð föst krónutala geti skert stuðning við þá sem þurfa að ferðast með skömmum fyrirvara og þannig dregið úr jöfnunarhlutverki Loftbrúar.
Sveitarstjórn skorar á ráðherra að falla frá áformunum eða, áður en ákvörðun um breytingar er tekin, hafa víðtækt samráð við sveitarfélög og aðra hagsmunaaðila á landsbyggðinni.
Samþykkt samhljóða.