Golfklúbbur Mývatnssveitar - fyrirspurn varðandi lagningu heitavatnslagnar að golfskála klúbbsins
Málsnúmer 2609012
Vakta málsnúmerSveitarstjórn Þingeyjarsveitar - 89. fundur - 12.11.2026
Fyrir sveitarstjórn liggur erindi frá Elvari Goða Yngvason, f.h. Golfklúbbs Mývatnssveitar, þar sem óskað er eftir því að sveitarfélagið komi að lagningu heitavatnslagnar að golfskála klúbbsins.
Sveitarstjórn þakkar Golfklúbbi Mývatnssveitar fyrir erindið. Sveitarstjórn mun ekki standa undir kostnaði við framkvæmd heitavatnslagnar að svo stöddu.
Samþykkt með sex atkvæðum, Hallgrímur Páll situr hjá.