Fyrir sveitarstjórn er til umræðu gjaldtaka í Vaðlaheiðargöngum.
Til máls tóku: Eyþór Kári, Hallgrímur Páll, Anna, Dóra Rún, Knútur, Hallgrímur Páll, Eyþór Kári og Knútur.
Sveitarstjórn hvetur stjórnvöld til að endurskoða fyrirkomulag gjaldtöku í Vaðlaheiðargöngum með það að markmiði að betur verði komið til móts við reglulega notendur gangnanna. Vaðlaheiðargöng hafa verulega þýðingu fyrir íbúa Þingeyjarsveitar, sérstaklega þá sem sækja daglega vinnu og aðra þjónustu um göngin, sem og þá aðila sem stunda vinnu í Þingeyjarsveit.
Sveitarstjóra falið að koma sjónarmiðum sveitarstjórnar á framfæri við stjórnvöld.

Samþykkt samhljóða.