Fara í efni

Heilbrigðisnefnd Norðurlands eystra - fundargerðir 2026-2030

Málsnúmer 2608079

Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn Þingeyjarsveitar - 87. fundur - 01.10.2026

Fyrir sveitarstjórn liggur til kynningar fundargerð 251. fundar stjórnar Heilbrigðiseftirlits Norðurlands eystra frá 11. september s.l.
Til máls tók: Knútur.

Sveitarstjórn tekur undir bókun heilbrigðisnefndar í 10. lið fundargerðarinnar og telur afar mikilvægt að draga úr þeirri óvissu sem starfsfólk býr við í yfirstandandi breytingaferli.

Fyrirhugaðar breytingar fela meðal annars í sér að verkefni sem hingað til hafa verið á hendi heilbrigðisnefnda sveitarfélaga flytjist til Umhverfis- og orkustofnunar, en jafnframt að tiltekin verkefni færist til sveitarfélaga. Gert er ráð fyrir að reglugerðarbreytingarnar taki gildi 1. janúar 2027 samhliða lagabreytingunum.

Sveitarstjórn leggur ríka áherslu á að sem fyrst liggi skýrt fyrir hvaða verkefni verði áfram á ábyrgð sveitarfélaga og hvaða fjármögnun muni fylgja þeim verkefnum.

Samþykkt samhljóða.
Fylgiskjöl:

Sveitarstjórn Þingeyjarsveitar - 89. fundur - 12.11.2026

Fyrir sveitarstjórn liggur til kynningar fundargerð 252. fundar stjórnar Heilbrigðiseftirlits Norðurlands eystra frá 30. október s.l. Einnig samþykkt fjárhagsáætlun HNE og framlög sveitarfélaga 2027.
Til máls tók: Knútur.

Lagt fram til kynningar.
Fylgiskjöl:
Getum við bætt efni þessarar síðu?