Fara í efni

Veiðifélag Reykjadals og Eyvindarlækjar - bókun aðalfundar varðandi mengun frá þéttbýli Lauga og áhrif á vatnsgæði Reykjadalsár

Málsnúmer 2611011

Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn Þingeyjarsveitar - 89. fundur - 12.11.2026

Fyrir sveitarstjórn liggur bókun aðalfundar Veiðifélags Reykjadalsár og Eyvindarlækjar varðandi mengun frá þéttbýli Lauga og áhrif þess á Reykjadalsá.
Til máls tóku: Anna, Eyþór Kári, Hallgrímur Páll og Knútur.

Sveitarstjórn þakkar erindið og tekur undir mikilvægi þess að tryggja vatnsgæði í Reykjadalsá.
Sveitarstjórn vill beina því til Náttúruverndarstofnunar að Reykjadalsá er hluti af vatnakerfi Laxár í Aðaldal og því sé rétt að horfa til hennar við endurskoðun verndaráætlunar fyrir Mývatn og Laxá, og hún verði innifalin í ítarlegri vöktun vatnshlotsins.

Samþykkt samhljóða.

Getum við bætt efni þessarar síðu?