SUNN - bréf til sveitarstjórnar vegna Norðurvegs í Kinn
Málsnúmer 2611017
Vakta málsnúmerSveitarstjórn Þingeyjarsveitar - 89. fundur - 12.11.2026
Fyrir sveitarstjórn liggur erindi frá SUNN, Samtök um náttúruvernd á Norðurlandi, vegna Norðurvegs í Kinn
Freydís Anna lýsti yfir mögulegu vanhæfi sínu. Sveitarstjórn hafnar vanhæfi Freydísar Önnu.
Samþjöppun heilbrigðisþjónustu og löggæslu á Akureyri er meðal þess sem kallar á greiðar og öruggar vegasamgöngur fyrir almenning. Sveitarstjórn álítur að það séu brýnir almannahagsmunir landshlutans að íbúar komist greitt og örugglega undir læknishendur og að viðbragðstími löggæslu, sjúkrabíla, slökkviliðs og hjálparsveita sé sem stystur.
Samþykkt samhljóða.