Sveitarstjórn Þingeyjarsveitar - breyting á dagsetningu fundar í desember
Málsnúmer 2611021
Vakta málsnúmerSveitarstjórn Þingeyjarsveitar - 89. fundur - 12.11.2026
Fyrir sveitarstjórn liggur tillaga að breytingu á fundaáætlun sveitarstjórnar í desember 2026. Lagt er til að fundur sem fyrirhugaður er 3. desember verði færður til 10. desember með hliðsjón af tímasetningu fyrri og síðari umræðu um fjárhagsáætlun ársins 2027 sem þarf að vera lokið eigi síðar en 15. desember. Jafnframt er lagt til að fyrirhugaður fundur 17. desember verði felldur niður.
Sveitarstjórn samþykkir að breyta áður samþykktri fundaáætlun þannig að sveitarstjórnarfundur, sem fyrirhugaður var 3. desember 2026, verði haldinn 10. desember 2026. Breytingin er gerð þar sem fyrri umræða um fjárhagsáætlun ársins 2027 fer fram 26. nóvember og nauðsynlegt er að tilskilinn tími líði fram að síðari umræðu. Jafnframt samþykkir sveitarstjórn að fella niður fund sem fyrirhugaður var 17. desember 2026.
Samþykkt samhljóða.