Til umræðu í sveitarstjórn er mikilvægi fastrar starfsstöðvar þyrlu Landhelgisgæslu Íslands á Akureyri.
Til máls tóku: Hallgrímur, Anna og Knútur.
Sveitarstjórn Þingeyjarsveitar lýsir yfir eindregnum stuðningi við þingsályktunartillögu um fasta starfsstöð þyrlu Landhelgisgæslu Íslands á Akureyri.
Þingeyjarsveit er stærsta sveitarfélag landsins að flatarmáli og nær frá Skjálfanda inn að Vatnajökli. Svæðið er víðfeðmt og víða strjálbýlt, sem getur skapað áskoranir fyrir viðbragðsaðila þegar alvarleg atvik verða. Föst staðsetning þyrlu á Akureyri myndi styrkja verulega öryggi íbúa, ferðamanna og þeirra sem stunda atvinnu á landi og sjó á Norður- og Austurlandi sem og á hálendinu.
Sveitarstjórn tekur undir það mat sem fram kemur í umsögn Landhelgisgæslunnar að staðsetning þyrlu á Akureyri myndi stórbæta getu stofnunarinnar til björgunar-, sjúkraflugs- og eftirlitsverkefna og stytta viðbragðstíma umtalsvert víða um land.
Sveitarstjórn skorar á ríkisstjórn og Alþingi að leggja fram tímasetta og fjármagnaða áætlun um fasta starfsstöð þyrlu Landhelgisgæslunnar á Akureyri. Jafnframt er hvatt til þess að hafið verði án tafar tilraunaverkefni í samræmi við tillögur Landhelgisgæslunnar, með það að markmiði að koma á fastri starfsstöð í framtíðinni.
Allir landsmenn eiga að njóta sambærilegs öryggis og viðbragðsgetu, óháð búsetu.

Samþykkt samhljóða.