Sveitarstjórn Þingeyjarsveitar - útsendingar sveitarstjórnarfunda
Málsnúmer 2609009
Vakta málsnúmerSveitarstjórn Þingeyjarsveitar - 86. fundur - 10.09.2026
Til umræðu hefur verið hjá sveitarstjórn að hætta útsendingum frá sveitarstjórnarfundum, nema sérstök tilefni séu til. Með þessu hyggst sveitarstjórn ná fram betri umræðu á fundum, en muni þess í stað leggja meira uppúr því að inngangar mála séu lýsandi, bókanir skýrari, sem og að fylgiskjöl fylgi málum líkt og kveðið er á um í reglum um birtingu skjala.
Sveitarstjórn samþykkir að hætta reglubundinni útsendingu sveitarstjórnarfunda nema sérstök tilefni séu til. Áhersla verði lögð á skýra og gagnsæja upplýsingamiðlun með lýsandi málsmeðferð, vönduðum bókunum og birtingu fylgiskjala í samræmi við reglur sveitarfélagsins um birtingu skjala.
Upplýsingum um störf og ákvarðanir sveitarstjórnar verði miðlað með markvissum hætti á öðrum miðlum sveitarfélagsins.
Sveitarstjórn bendir á að allir fundir sveitarstjórnar eru opnir fundir.
Samþykkt samhljóða.